Sri Lanka er stórkostleg eyja í Suður-Asíu. Smaragðsgrænir regnskógar, stórglæsilegar strendur og dásamlega fallegt landslag í bland við áhugaverða menningu og ríka arfleifð er brot af því sem hefur dregið ferðamenn til Sri Lanka árum saman og ferðamannaiðnaður landsins blómstrar. Heimurinn nýtur afurða frá Sri Lanka á borð við te, kaffi, kanil og kókoshneta í frábærum gæðaflokki.
Sri Lanka hefur verið miðja búddatrúar síðan á fornöld. Þjóðin er mynduð úr fjölda þjóðarbrota og ásamt búddatrú og hindú eiga kristin trú og múslimatrú einnig sinn sess í Sri Lanka. Þú munt njóta þess að horfa á hina litríku saree, klúta úr silki eða bómull sem konur klæðast og þú munt dásama glæsileika Sinhalese stafrófsins, en fallegir sveigir þess skreyta borgarmyndina. Leyfðu þér að njóta ávaxta, skartgripa og krydda sem þú finnur á mörkuðum. Ef þú ferð til Sri Lanka á sama tíma og hátíð er haldin færðu mest út úr ferðinni.
Þjóðarblóm Sri Lanka
Þjóðarblóm Sri Lanka er Nymphaea stellata og er notað til þess að skreyta lúxus heilsulindir sem eru í ferðamannamiðstöðvum landsins. Strendurnar sem eru þaktar pálmatrjám, bjóða upp á frábæra staði til fyrir surf. Þú vilt ekki missa af þeim! Hin frábæru Búdda-minnismerki, teakrar og dýralíf er einnig eitthvað sem er alltaf hægt að dást að.
Það er yfirleitt auðvelt að komast á milli staða í Sri Lanka þar sem flestar borgir eru tengdar lestarkerfinu, Sri Lanka Railways. Vegna breskrar nýlendumenningar bera mörg úthverfi vestræn einkenni. Sri Lanka er þróunarland og því er verðlag yfirleitt mjög lágt. Samt er menntun mjög mikilvæg fyrir íbúa landsins og er læsi mjög almennt, eða 92%.
Hvað á að skoða í Sri Lanka?
Yala National Park í suðaustri er þjóðgarður þar sem haldið er utan um fílahjarðir. Sjáðu líka blettatígra, dádýr og páfugla þegar þú ferð í skemmtilegt safarí að skoða dýralífið. Wilpattu National Park er í norðvestri og þar er spennandi fuglalíf þar sem sérstaklega er gaman að fylgjast með vatnsfuglum, allt frá storkum til flatnefja. Sinharaja Forest svæðið er svo á heimsminjaskrá UNESCO.
Þú munt dást að Hill Country svæðisins og hinum grænu teökrum sem þar eru. Ef þú hins vegar vilt meiri spennu getur þú farið að surfa í Arugam Bay, indælu strandarþorpi þar sem er áhugavert dýralíf. Annar góður staður til að skoða er Ella, en þangað verður þú að fara ef þú ferð til Sri Lanka og skoða hofin og fossana. Horton’s Plain og World’s End eru góðir staðir ef þú ert að leita að skemmtilegu náttúrulífi.
Borgarlíf Sri Lanka
Fornu borgirnar Anuradhapura og Polonnaruwa eru eitthvað sem allir verða að skoða en þar eru magnaðar byggingar sem geyma minjar úr búddatrú og eru kallaðar „stupa“. Jafnframt er þar meira af áhugaverðri búddalist.
Galle er gamall og fullkomlega varðveittur bær sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar má auðveldlega finna minjar frá hollenskri nýlendumenningu.
Hátíðir í Sri Lanka
Sinhala er haldið þann 13. apríl og Tamil er nýárshátíðin sem fyllir strætin af fagnandi fólki. Esala Peraha er 10 daga hátíð þar sem sjá má heillandi búninga, skreytta fíla og kandyan sem og aðra menningartengda dansa. Hátíðin er haldin árlega í júlí, eða ágúst í Kandy.
Veður í Sri Lanka
Veðurfar í Sri Lanka er temprað og hlýtt. Meðalhiti ársins er frá um 28°C til næstum 31°C. Í janúar, þegar er vetur, klæðast innfæddir jökkum. Regntímabilið er frá apríl og fram í júní en líka frá október til nóvember. Regntímabilið bleytir í suðvesturhorni landsins milli maí og september. Besti tíminn til að fara til Sri Lanka er á tímabilinu nóvember-apríl.
Ferðaráð
Það hafa verið átök á milli hers Sri Lankan og Tamiltígra en þau eru nú í lægð. Það er samt mikilvægt að fara varlega. Fáðu upplýsingar fyrir ferðina og skoðaðu hvort það séu einhverjar ábendingar frá stjórnvöldum áður en þú leggur af stað.