{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
oceania-coconut-leaf-cover
oceania-whale-rarotonga-cook-islands-sidebar

Eyjaálfa - Algjör paradís á jörð

Í Eyjaálfu er að finna mörg af óspilltustu og fallegustu náttúrulífssvæðum heims. Óbyggðir Ástralíu þekja gríðarstórt svæði og þar geturðu ferðast í marga daga án þess að rekast á aðra manneskju. Svo geturðu einnig heimsótt einhverja af stórborgum álfunnar, t.d. Sydney eða Melbourne og upplifað allt það sem spennandi stórborgir hafa upp á að bjóða! Á ferðalagi þínu um Eyjaálfu geturðu einnig kafað eða snorklað í einu af þeim þúsundum kóralrifja sem saman mynda Great Barrier Reef, farið að sörfa eða kannað villt dýralíf álfunnar sem er svo sannarlega einstakt.

Fá fría ráðgjöf

Vingjarnlegir íbúar Eyjaálfu

Mesta aðdráttarafl þessarar heillandi heimsálfu er hugsanlega íbúar hennar. Hér hittirðu fyrir einstaklega vingjarnlegt og glaðlynt fólk með afslappað lífsviðhorf sem einkennist af 'þetta reddast' hugsanahættinum. Fólk hér hefur tamið sér afar jákvætt hugarfar og mun taka þér opnum örmum. Hér er auðvelt að slaka á og tileinka sér lífsvenjur heimamanna. 

Fá meiri upplýsingar um Eyjaálfu

Að ferðast til og um Eyjaálfu

Hægt er að ferðast til Ástralíu, Nýja Sjálands eða Kyrrahafseyjanna í gegnum Asíu, Norður-Ameríku, Suður-Ameríku eða jafnvel Afríku ef þú kýst það. Námsmönnum og ungu fólki bjóðast ódýrari miðar og meiri sveigjanleiki. Spurðu ferðaráðgjafa KILROY um frekari upplýsingar. Að komast hinum megin á hnöttinn tekur sinn tíma en klárlega þess virði. Fllug frá til dæmis Los Angeles til Sydney er um 14 tímar og flugtíminn frá Balí er um 6 tímar.

Hægt er að heimsækja flottustu og ævintýralegustu staðina með reyndum leiðsögumönnum, ferðast með fólki sem er í svipuðum ferðahugleiðingum og á sama tíma eignast nýja vini frá öllum heimshornum.

Eyjaálfa er stór og vegalengdir á milli staða mjög miklar, þú þarft því að gefa þér góðan tíma til þess að ferðast um álfuna. Sem dæmi er Ástralía svipuð að flatarmáli og meginland Evrópu og því mælum við oft með að fólk fljúgi innanlands frekar en að taka lest eða rútu til þess að spara tíma og geta nýtt tímann í eitthvað skemmtilegra.

Ef þú vilt frelsi og sjálfstæði geturðu leigt bíl - sveigjanlegasta leiðin til að ferðast ódýrt um Ástralíu og Nýja Sjáland, en þú þarft að venjast því að keyra á "röngum vegarhelmingi". Ef þú vilt svo leigja húsbíl með KILROY þá bjóðum við upp á alla sveigjanlegustu og ódýrustu ferðamöguleikana!

Fá meiri upplýsingar um ferðalög í Eyjaálfu

Gisting í Eyjaálfu

Í Ástralíu, Nýja Sjálandi og á Fiji og öðrum Kyrrahafseyjum er hægt að finna góð og um leið ódýr hostel og hótel. Á Kyrrahafseyjunum geturðu einnig fundið hlýleg og notaleg gistiheimili eða smáhýsi. Við mælum með að þú bókir að minnsta kosti fyrstu næturnar í borginni sem þú byrjar ferðalagið þitt fyrirfram og sleppir þannig við vesenið við að finna gistingu þegar þú kemur á staðinn þreyttur eftir langt ferðalag. KILROY getur bókað fyrir þig gistingu fyrir fyrstu næturnar eða allar ferðina.

Fá meiri upplýsingar um gistingar í Eyjaálfu

Hvenær er best að ferðast til Eyjaálfu?

Eyjaálfa er góður áfangastaður allt árið um kring, en mundu að sumarið þar er frá nóvember til febrúar og því sunnar sem þú ferðast því kaldara veður. 

Fá meiri upplýsingar um Eyjaálfu

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.