{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
cape-town-guy-enjoying-the-mountain-view-cover
cape-town-south-africa-lions-head-mountain-look-ocean-sidebar

Höfðaborg - Hin kraftmikla móðurborg

Höfðaborg er ein af fallegustu stórborgum Suður-Afríku. Hún er staðsett við hið fallega fjall Table Mountain, en frá toppi fjallsins er stórkostlegt útsýni alla leið til Cape Point. Bókaðu ferðina til Höfðaborgar með okkur!

Fá fría ráðgjöf

Höfðaborg - hafnarborg með meiru

Vegna staðsetningar Höfðaborgar á suðurodda Afríku, er höfn borgarinnar ein sú mikilvægasta í heimsálfunni. Þaðan getur þú tekið ferju til margra af helstu merkisstöðum Höfðaborgar, t.d. eyjunnar Robben Island sem er nauðsynlegt fyrir alla sem heimsækja Höfðaborg að sjá. Þar var Nelson Mandela í fangelsi í 27 ár! Leiðsögumenn staðarins eru fyrrum fangar og þeir leiða þig í sögulegt ferðalag um Suður-Afríku. 

Fá meiri upplýsingar um hvað er hægt að gera í Höfðaborg

Table Mountain og miðborg Höfðaborgar

Annar merkisstaður er fjallið Table Mountain. Einfaldast er að stökkva upp í kláf og fara í rólegheitum upp, en ef þú vilt komast í meiri nálægð við náttúruna þá eru gönguleiðirnar vel merktar og það tekur þig ekki nema u.þ.b. 2 tíma að ganga upp fjallið. Frá toppi Table Mountain er stórfenglegt útsýni sem þú kemur seint til með að gleyma!

Miðbær Höfðaborgar býður uppá marga nýtískulega veitingastaði, skýjakljúfa, tískuvöruverslanir og líflegt næturlíf. District Six Museum er smekklegt svæði í miðbænum sem er vel þess virði að heimsækja.

Fá meiri upplýsingar um Höfðaborg

Dramatísk ströndin

Ef þú er ekki búinn að fá nóg af stórkostlegu útsýni yfir klettastrendur og freyðandi öldur, þá mælum við með að þú keyrir meðfram hinni frægu strandlengju Chapmans Peak Drive, einn af fallegustu strandvegum heims. Ekki klikka á að fara alla leið að sjálfum Cape Point, syðsta punkti Afríku þar sem Atlantshaf og Indlandshaf mætast. Á leiðinni ættirðu að koma við á Boulder Beach mörgæsaströndinni, þar sem allt er krökkt af mörgæsum eins og nafnið gefur til kynna.  

Fá meiri upplýsingar um Höfðaborg

Townships og vínhéruð

Höfðaborg, og þá sérstaklega útjaðar borgarinnar, er þekkt og alræmd fyrir sín mörgu townships, nokkurskonar fátækrahverfi sem að miklu leyti eru með sjálfstjórn. Leiðsögumennirnir segja þér frá "ubuntu"; sérstöku lífsviðhorfi íbúanna og hversdagslífi þeirra. 

Aðeins fyrir utan Höfðaborg er hægt að finna afbragðs góð vínhéruð. Suður-Afríka er, eins og flestir vita, þekkt fyrir góð og frekar ódýr vín. Þú getur smakkað eða keypt vín á Paarl, Stellenbosch og Franschhoek, sem allar eru framúrskarandi vínekrur. 

Fá meiri upplýsingar um Höfðaborg

Afþreying í Höfðaborg

Hákarlaköfun er afar vinsælt sport og hægt er að komast í slíkt ævintýri í sjónum rétt fyrir utan borgina. Köfunin fer að sjálfsögðu fram með leiðsögumanni og þetta sport er fyrir marga eftirminnilegasta upplifunin og einstakt ævintýri. Eitt er víst, og það er að þú færð aldrei tækifæri til að komast nær þessum hættulegu dýrum, eins og t.d. hvíta hákarlinum. Kannaðu þó vel áður hvort það séu nokkuð notaðar vafasamar aðferðir við að laða þá að búrinu eins og með beitu.

Umhverfið í kringum Höfðaborg býður einnig uppá góðar strendur til að fara á brimbretti og ef þú er byrjandi þá er um að gera að skella sér í surfskóla!

Fá meiri upplýsingar um hvað er hægt að gera í Höfðaborg

Að ferðast á milli

Það eru engar almenningssamgöngur svo þú skalt taka leigubíl eða ganga í dagsbirtu. Forðastu að ganga einn, sérstaklega eftir myrkur. Það eru örugg rútufyrirtæki starfræk á milli aðal borganna og bæjanna. Þú getur líka notað Baz Bus rúturnar, sem eru sniðugar fyrir bakpokaferðamenn því það er hægt að hoppa af og í rúturnar þegar þú vilt. Baz Bus fer á milli 180 farfuglaheimila í allri Suður Afríku.

Fá meiri upplýsingar um Höfðaborg  

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.