Í Afríku getur þú látið drauma þína rætast: skoðað dýralífið, klifið Kilimanjaro, notið fallegu strandanna á Zanzibar eða farið í sjálfboðastarf. Að sjá Viktoríu-fossa er svo upplifun sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Ef þú ert meira fyrir fornar grískar eða rómverskar söguslóðir skaltu ferðast til Egyptalands og skoða píramídana hjá Giza og Luxor. Þessi magnaða heimsálfa mun án efa standa undir öllum þínum væntingum og skilja eftir ógleymanlegar minningar.
Ævintýraferðir um Afríku
Afríka hefur upp á svo ótalmargt að bjóða að ógerlegt er að nefna það allt hér. Hvar best er að byrja ferðina fer eftir hverjum og einum og miðast við hverju þú ert að leita eftir.
Ef þú hefur áhuga og möguleika á að fara í safarí í Afríku þá mælum við eindregið með því, af því að nátttúran og villt dýralífið er eitt það magnaðasta sem hægt er að upplifa. Við bendum sérstaklega á Masai Mara í Kenýa, Serengeti í Tansaníu, Botsvana eða Krüger þjóðgarðinn í Suður-Afríku. Á þessum sléttum Afríku er mikill möguleiki á að sjá hin "fimm stóru"; ljón, fíla, buffalóa, hlébarða og nashyrninga. Í safaríferðum áttu einnig mikla möguleika á að sjá gíraffa, sebrahesta, krókudíla, antílópur og margt fleira.
Þú gætir einnig klifið Mount Kilimanjaro, farið í heimsklassa köfun við strendur Zanzibar eða Mósambík eða farið á úlfaldabak um stærstu eyðimörk Marokkó, Egyptlands eða annars lands sem vekur áhuga þinn. Þú gætir svo jafnvel sameinað ferðalagið þitt sjálboðastarfi, sem er bæði frábær reynsla og gefandi. Sjálfboðastarf er frábær leið til þess að kynnast bæði náttúru og menningu Afríku.
Það er einnig ógleymanlegt að sjá pýramídana í Egyptalandi, hina dularfullu og mögnuðu Sahara eyðimörk og upplifa stemninguna á exótísku mörkuðum Marrakesh í Marokkó. En sama hvar áhugi þinn liggur, þá er engin ferð til Afríku fullkomnuð nema með því að sjá einhvern af 100m háu Viktoríufossunum í Simbabve.
Þetta eru einungis örfá dæmi um það sem ferð til Afríku hefur upp á að bjóða. Til að nefna eitt í viðbót, þá er einn af földu gimsteinum Afríku Úganda. Þar finnur þú fallega regnskóga og jafnvel frjálsar fjalla-górillur.
Að ferðast um Afríku
Þú getur ferðast um Afríku með rútu, til dæmis með BazBus í Suður-Afríku sem býður uppá hop-on-hop-off möguleika. Lestarkerfi í Afríku eru þó ekki mjög áreiðanleg og geta verið mjög flókin. Til að fá sem mest frelsi og sveigjanleika í ferðinni þinni um svæði eins og Suður Afríku, Botsvana, Namibíu og jafnvel Egyptaland mælum við með að þú leigir bílaleigubíl og keyrir sjálf/ur. Það er ekki mikið um lággjaldaflugfélög í Afríku en þó nokkur, t.d. í Suður-Afríku geturðu fundið fyrirtæki eins og Kululu og Mango.