Ef þú hefur ferðast alla leiðina til Ástralíu mælum við sterklega með því að þú farir til litlu eyjunnar við suðurenda landsins, hina fallegu Tasmaníu. Eyjan er að mörgu leyti ólík Ástralíu en á sama tíma lýsandi fyrir landið. Þar er að finna landsvæði sem einkennist af villtri náttúrufegurð og spennandi dýralífi; kengúrur og kóalabirnir út um allt! Á sama tíma á borgarlíf Tasmaníu sér mikla sögu og fylgir ýmsum tískustraumum.
Hin villta Tasmanía
Það hversu fáir ferðamenn heimsækja eyjunna er sannarlega kostur og þú hefur mikla möguleika á njóta ósnortinnar náttúrunnar. Þú getur meðal annars farið í göngu, hjólað, farið í rafting eða siglt á kajak í villtri en á sama tíma friðsælli náttúrunni.
Besti staðurinn til að fara í gönguferð sem liggur í gegnum Cradle Mountain-Lake St Clair þjóðgarðinn nefnist Overland Track. Þessi ganga tekur sex daga en þú verður að hafa í huga að veðurfar getur breyst á milli klukkutíma. Ímyndaðu þér bara að þú sért að pakka fyrir ferð til Íslands!
Við getum líka mælt með því að heimsækja Freycenet þjóðgarðinn. Þar má finna mikið af ósnortnum ströndum og víkum og þar eru líka frábær tækifæri fyrir góðar gönguferðir. Þú munt sérstaklega njóta hinna dásamlegu, nánast bleiku, granítkletta sem þessi þjóðgarður er frægastur fyrir.
Á austurströnd Tasmaníu finnur þú fullt af heillandi strandbæjum og töfrandi útsýni yfir hina fallegu strandlengju. Við mælum með að heimsækja Wine Glass flóann og Mt William þjóðgarðinn.
Borgin Hobart og hin sögulega Port Arthur
Aðalborg Tasmaníu er Hobart, en borgin er annar hápunktur ferðarinnar um austurströndina. Borgin ber af sér sögulegan þokka en hún er næstelsta borg Ástralíu. Staðsetning borgarinnar og nálægð hennar við Mt Wellington og sjóinn er ekki slæm, en ef þú vilt eyða heilum degi við hafið mælum við með dagsferð á hina dásamlegu Seven Mile strönd!
Ferðalagið þitt um suðaustur Tasmaníu ætti einnig að leiða þig til Port Arthur sem er sögulegt svæði frá þeim tíma þar sem fangar voru með fyrstu íbúum Ástralíu. Staðurinn hefur eitthvað sorglegt og myrkt við sig en er um leið ótrúlega hrífandi.
Vesturhluti Tasmaníu
Þú hefur ekki upplifað „alvöru“ Tasmaníu fyrr en þú hefur komið á vesturhluta eyjarinnar. Stærsti hluti þessa landsvæðis er villtur og ósnortinn og það er ekki alltaf auðvelt að ferðast um svæðið.
Eitt af því sem þú verður að skoða á suðvesturhorninu er hinn stórbrotni Franklin-Gordon Wild Rivers þjóðgarður sem býður upp á frábær skilyrði fyrir rafting, klifur og gönguferðir. Þar eru djúp árgljúfur, þykkir regnskógar og fallegar gönguleiðir.
Annar dásamlega fallegur þjóðgarður heitir Southwest National Park og er staðsettur á stóru landsvæði á suðvesturhluta eyjunnar. Þessi þjóðgarður er undraverður; ósnortinn regnskógur, gríðarstór gúmmítré, fornar furur, stórbrotnir burknar og rakur mosi. Auk þessa sérðu hvíta fjallstinda sem speglast í fjallavötnunum og á sumrin fjölbreytta flóru villtra blóma. Ef þetta er ekki nóg til að fá þig til að draga fram myndavélina þína eru þar líka fallegar ár, gljúfur og fossar.