Þessi stórfenglega og gríðarstóra heimsálfa hefur upp á ótalmargt að bjóða fyrir alla. Þar er að finna nokkrar af mögnuðustu stórborgum heims, fjallagarða og eyðirmerkur. Í Kanada kemstu í snertingu við ævintýri norðurskautsins en í Mexíkó finnurðu guðdómlegar strendur með frábært sörf og köfun. Hvað dreymir þig um að gera? KILROY er hér til að aðstoða þig með að skipuleggja og bóka þín draumferð til Norður-Ameríku!
Hvað á að gera í Norður-Ameríku?
Í bæði Kanada og Bandaríkjunum er að finna frábær fjöll og skíðasvæði. Klettafjöll í Kanada eru t.d. þekkt fyrir freistandi púðursnjó og skemmtilegar brekkur. Önnur skíðasvæði sem við mælum með eru Whistler, Fernie, Lake Louise, þjóðgarðarnir Banff og Jasper og svo önnur minni svæði eins og Big White og Kicking Horse.
Ferð til Kanada gefur þér einnig tækifæri á að sjá gríðarstórar sléttur, ótrúlega náttúrufegurð Quebec og spennandi borgir. Þegar þú byrjar að ferðast um Kanada muntu fljótt sjá að það er nánast ómögulegt að klára að kanna allt það sem þetta dásamlega land hefur upp á að bjóða, möguleikarnir eru endalausir.
Í syðsta hluta þessa Norður-Ameríku þríleiks, Mexíkó, muntu finna grænblá höf með öldum sem eru fullkomnar til að sörfa, sérstaklega við Kyrrahafsströndina. Á eystri strönd Yucatan skagans sem liggur við Karíbahafið er hver himneska baðströndin á fætur annarri. Ef þú ert ekki mikið fyrir að liggja í leti á ströndinni geturðu kannað hina fornu menningu Maya indíána í rústum og pýramídum, gætt þér á ljúffengum, mexíkóskum mat, eða tekið dýfu í einum af óteljandi fallegu fossum landsins eða náttúrulaugum. Þú gætir einnig leyft þér að villast í einum af gömlu og heillandi bæjum Mexíkó, farið í verslunarðleiðangur á markaði þar sem hægt er að finna allt milli himins og jarðar eða eytt tíma í einni af stærstu og erilsömustu borgum jarðar; Mexíkó borg.
Að ferðast til og um Norður-Ameríku
Fáðu upplýsingar hjá ferðaráðgjafa KILROY um möguleikann á að setja saman flugmiða með mörgum áfangastöðum á ferðalaginu.
Besta leiðin til að kanna Bandaríking og Kanada er þó með því að leigja bíl/húsbíl og upplifa þannig allt sem þessi tvö lönd hafa upp á að bjóða á fjórum hjólum með fullkomið frelsi til að stoppa hvar sem þú sérð eitthvað spennandi eða girnilegt.
Við mælum með að keyra um hinn fræga Western Triangle. Það er tilvalið að byrja í San Francisco og keyra svo meðfram ströndinni eftir Highway 101 og setja stefnuna á Los Angeles. Ekki gleyma að stoppa á leiðinni til að njóta útsýnisins; dökkbláar öldur Kyrrahafsins að skella á ströndinni er einstök sjón. Þegar þú hefur fengið nóg af Los Angeles er upplagt að stefna inn í eyðimörkina og upplifa heimsins frægustu spilavítisborg; Las Vegas. Hvort sem heppnin verður með þér í spilavítunum eða ekki þá skaltu ekki sleppa tækifærinu á að sjá Grand Canyon eða Yosemite National Park.
Á ferðalagi til Bandaríkjanna gætirðu einnig freistast til að heimsækja hið fallega New England í norð-austri, hin heillandi suðurríki eða mið-vestur ríkin sem búa yfir miklum glæsileika en á sama tíma skemmtilegu og öðruvísi andrúmslofti.
Verðlag í Norður-Ameríku
Verðlag í Norður-Ameríku (Kanada og Bandaríkin) er almennt nokkuð lægra en í Evrópu, sumar stórborgir eru þó undantekningar! Ekki hafa áhyggjur af matarkostnaði , matur er frekar ódýr í Norður-Ameríku og skammtarnir mjög stórir! Í Mexíkó er hins vegar allt ódýrara!