Þú þarft ekki að búa yfir neinni reynslu, hæfileikum eða eiga ákveðinn búnað til þess að skrá þig í kajakferð og sjá heiminn frá öðru sjónarhorni. Að líða um kyrrlátt vatnið á meðan þú dáist að yndislegu umhverfinu er frábær leið til þess að kanna ný svæði!
Fá fría ráðgjöf
Bestu kajakferðir í heimi
Stundum er gott að kúpla sig aðeins út úr hraðanum og mannfjöldanum og upplifa heiminn í rólegheitum. Að vera á kajak er frábær leið til þess að skoða langar strandlengjur, friðsælar ár, einangraðar strandir og leynda flóa.
Hvernig líst þér á kajakferð um Tortuguero í Kosta Ríka og leita af öpum og letidýrum? Eða kannski að sigla á kajak á milli mikilfenglegra kletta í hinum fræga Halong Bay í Víetnam? Þitt er valið, það er nóg í boði!
Ég vil vita meira