Kalifornía er geggjaður staður til þess að læra að surfa fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna. Þetta er fæðingarstaður surfmenningarinnar! Að fara í surfskóla er frábær leið til þess að fá sem mest út úr dvölinni þinni í Kaliforníu; þú lærir á brimbrettið, færð aðgang að öllum búnaði og gistir á frábærum stað með fleiri bakpokaferðalöngum sem koma víðsvegar að úr heiminum.
Þegar þú ert ekki að leika þér í öldunum hefur þú fullt frelsi til þess að gera það sem þú vilt. Þér á ekki eftir að leiðast í Kaliforníu! Þú færð að upplifa margar bestu surfstrandir Kaliforníu því að surfkennslan fer fram hvar sem skilyrðin eru best á hverjum degi.
Surfskóli í Kaliforníu er frábær viðbót við heimsreisuna!
Fá fría ráðgjöf