10 hlutir sem bakpokaferðalangar gera en myndu aldrei viðurkenna
Margir hafa skoðun á því hvað það er sem einkennir hinn dæmigerða bakpokaferðalang. Hér eru hins vegar 10 hlutir sem flestir bakpokaferðalangar gera en myndu aldrei viðurkenna. Kannast þú við eitthvað af eftirfarandi?
1. Nota sömu nærfötin í tvo daga
Já það gerist! Það var ekki planið og þú varst kannski búin/n að skipuleggja næsta þvottadag en því miður breyttist allt þegar þú fréttir af tónlistarhátíð í næsta nágrenni. Hvaða máli skiptir einn dagur í viðbót?
2. Stela klósettpappír
Já, hvað er hægt að segja annað en að næsta rútuferð er löng og þú gleymdir að kaupa meiri klósettpappír. Sem betur fer var heil rúlla á hostelinu sem fór með í bakpokann.
3. Pissa í sjóinn
Hvort sem það er hafið, vatnið, áin eða laugin. Já þú veist að þú hefur gert það...
4. Drykkir í kvöldmat
Það er ekkert leyndarmál, þú átt eftir að drekka bjór og/eða kokteil í heimsreisunni. Stundum byrjar það hins vegar aðeins í fyrri kantinum og þar sem fjárhagurinn er ekki alltaf mikill getur það endað þannig að þú fáir þér drykk í stað kvöldverðar!
5. Að langa í vestrænan mat
Það er ekkert betra en að borða mat heimamanna og þá helst matinn af götustandinum. Hann er bæði góður og ódýr. Hver hefur þó ekki lent í því að sakna þess að fá hamborgara og franskar eða ljúffenga pizzu? Þetta endar oftast aðeins á einn veg - það er með einni eða tveimur ferðum á McDonalds...
6. Setja klósettpappírinn í klósettið
Ekki að það sé ætlunin en stundum gleymir maður sér bara!
7. Þykjast vera námsmaður
Það er allt of freistandi að næla sér í þennan auka námsmannaafslátt, sérstaklega þegar fjárhagurinn er ekki mikill.
8. Stunda kynlíf á hostelinu
Við höfum öll heyrt sögur! Og kannski ert þú ekki alveg saklaus. Þú heldur að það geti ekki gerst á 12 manna dormi, en jú það gerist! Og áður en þú veist af þá kemur það fyrir þig...
9. Borða annarra manna mat
Oftast er það einstakt tilfelli og stundum var það bara óvart. Þetta er allavega eitthvað sem enginn mun viðurkenna!
10. Klæða sig eins og allir aðrir
Þú keyptir nokkrar þunnar buxur með fíla mynstri á Tælandi og notar þær á hverjum degi. Ert þú kannski í þeim núna?
Er ekki annars kominn tími til að byrja að skipuleggja næsta ævintýri?