Vantar þig innblástur fyrir Instagrammið þitt?
Dreymir þig um að ferðast og upplifa heiminn á sama tíma og þú fangar fallegar myndir sem þú getur deilt á Instagram? Þá skaltu kíkja á þessa töfrandi 12 staði!
1. Cappadocia, Tyrkland
Fangaðu dýrðina í Cappadocia í Tyrklandi þegar loftbelgirnir svífa um himininn.
2. Lake Louise, Banff þjóðgarðurinn, Kanada
3. Chefchaouen, Marokkó
Chefchaouen er einnig þekkt sem "The Blue City" og er vel þess virði að heimsækja á ferð þinni um Marokkó. Þar muntu svo sannarlega fá tækifæri til að taka einstakar myndir.
4. Roy's Peak, Suðurey, Nýja-Sjáland
Roy's Peak á Nýja-Sjálandi er sturlaður staður fyrir alla þá sem elska náttúruna og falleg landslög. Hér er bókað hægt að taka fallegar myndir, enda er utsýnið frá toppnum stórkostlegt.
5. Agra, Indland
Þú getur farið nánast hvert sem er á Indlandi og tekið skemmtilegar myndir. Þú getur byrjað í Agra þar sem þú finnur bæði Red Fort og Taj Mahal. Ef þú velur síðan að ferðast til Indlands í febrúar eða mars þá getur tekið þátt í litríku Holi hátíðinni.
6. Santorini, Grikkland
Með sín hvítu og bláu hús, gamlar vindmyllur og litlar kirkjur, Santorini er svo sannarlega áfangastaður sem mun heilla þá sem þangað koma. Hér getur þú tekið fallegar Instagram myndir enda margir sem deila myndum þaðan.
7. Havana, Kúba
Havana er einstök en þar sem þú finnur marka heillandi staði. Litrík hús, gamlir bílar og salsa dansarar. Hér er úr nógu að velja þegar kemur að myndatökum!
8. Antelope Canyon, USA
Það er erfitt að lýsa Antelope Canyon með orðum þar sem best er að upplifa það með eigin augum. Þú getur þó reynt að deila fegurðinni með fylgjendum þínum á Instagram
9. Kyoto, Japan
Í Kyoto finnur þú heilan helling af hofum, görðum, kirsuberjatrjám og neon ljósum. Þig mun ekki vanta efni til að deila á Instagram á ferðalagi þínu þar.
10. Maldíveyjar
Það er ekkert sem að vekur meiri áhuga á Instagram en hvítar strendur og kristaltær sjór. Allir elska þannig myndir og þú getur tekið nóg af þeim á Maldíveyjum!
11. Monteverde, Kosta Ríka
12. Masai Mara, Kenía
Masai Mara er þekkt fyrir ótrúlegt villt dýralíf svo vertu tilbúin/n með myndavélina! Ef þú kemur hingað í september gæti heppnin verið með þér þar sem þú getur upplifað "The Great Migration" þar sem yfir 3 milljón dýr færa sig um set. Sú upplifun er á bucketlista margra bakpokaferðalanga.