15 vandamál sem allir bakpokaferðalangar skilja
Ef þú hefur farið í heimsreisu eða lengra bakpokaferðalag kannast þú pottþétt við þessi hversdagslegu vandamál bakpokaferðalanga.
1. Að sakna þess að sofa í alvöru rúmi
Flestir lenda í þessu. Það er bara svo dásamlegt að leggja höfuðið á mjúkan kodda og sofa heila nótt í alvöru rúmi! Það er ekkert sem fær mann til að meta rúmið sitt jafn mikið og nokkrir mánuðir af því að sofa í hengirúmi, flugvél, rútu, á flugvelli, lestarstöð, í harðri koju eða tjaldi.
2. Að verða besti vinur einhverra í tvo daga, en sjá þau svo aldrei aftur
Hugsaðu um allar frábæru minningarnar sem þið eigið frá þessum tveimur dögum í Buenos Aires eða Bangkok! Þökk sé Facebook er hægt að halda smá sambandi, en það er mjög líklegt að þú munir aldrei hitta þessa "bestu vini" þína aftur....
3. Að eiga nákvæmlega sama samtalið við alla sem þú hittir
Hvaðan ertu? Vá, ég hef aldrei áður hitt neinn frá Íslandi! Hvernig er að búa þar? Hvað ætlarðu að vera lengi hérna? Hvert ertu að fara næst? Hvar varstu síðast?
4. Hin eilífa barátta: Að láta allt komast ofan í bakpokann
Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum verður bakpokinn þyngri og fyllri eftir hvern áfangastað. Jafnvel þó þú kaupir ekki neitt nýtt!
5. Að þurfa að lykta af fötunum til þess að athuga hvort þau séu hrein
Það er alltaf jafn mikið stuð að reyna að komast að því hvaðan vonda lyktin úr bakpokanum kemur. Mundu að það er hægt að snúa nærbuxunum á rönguna og nota þær aftur!
6. Að láta svindla á sér...og tapa heilum dollar!
Það skiptir litlu máli, þessi manneskja þurfti eflaust meira á dollaranum að halda en þú....en það var svindlað á þér! Það er svo pirrandi!
7. Að hringja heim og sannfæra foreldrana um að þú sért ekki búin(n) með allan peninginn
Er í alvöru svona erfitt að trúa því að við viljum stundum bara heyra í þeim?
8. Skelfingin þegar þú fattar að þú gleymdir að taka klósettpappír með þér
Þegar þú situr í margrar klukkustundir í lest frá Delhi til Mumbai, nýbúin(n) að borða ljúffengan kjúklingarétt...þá fattarðu afhverju það er nauðsynlegt að vera alltaf - ALLTAF - með klósettpappírsrúllu í bakpokanum.
9. Óttinn við að finna ekki "alvöru" klósett
Af því að stundum er maður bara ekki í stuði fyrir holu í jörðinni og lyktina og köngulærnar sem því fylgja.
10. Óttinn við að kakkalakkar muni skríða inn í eyrað
Fullkomlega eðlilegt...eða hvað?
11. Að vera með fullt vegabréf
Hræðslan sem grípur um sig þegar þú fattar að það eru engar auðar síður eftir í vegabréfinu en þú átt eftir að heimsækja nokkur lönd í viðbót.
12. Að njóta þess að vera komin(n) heim.....eða hvað?
Heimþráin getur orðið sterk þegar þú ert að ferðast, en hún hverfur um leið og heim er komið og þú getur ekki beðið eftir að fara að ferðast aftur!
13. Að skipuleggja "reunion"
Nei, líklegast verður ekkert reunion. Þú ert samt með alla á Facebook svo þið getið haldið sambandi. En vel gert ef þér tekst að skipuleggja reunion með ferðafélögunum.
14. Að þurfa frí eftir fríið
Það tekur á að ferðast um heiminn í marga mánuði. Hversu margir hafa komið heim endurnærðir og til í að hefja nám eða vinnu? Nýtt frí takk!
15. Post-travel depression
Þessi hræðilega tilfinning sem læðist upp að manni stuttu eftir að heim er komið. Það er bara eitt ráð við þessu vandamáli: Að skipuleggja næsta frí!