1. Sveigjanleiki
Með Interrail miða opnar þú hurðina fyrir nánast ótakmarkaðan sveigjanleika. Þú getur farið þangað sem þú vilt þegar þú vilt. Þegar þú ferðast með lest í útlöndum þarftu oftast ekki að skipuleggja lestarferðina fyrirfram - nema þú ætlir að ferðast með vinsælustu lestunum eða með næturlest. Þú getur því farið á lestarstöðina þegar þig langar að fara á lestarstöðina og hoppað upp í næstu lest sem fer með þig þangað sem þig langar að fara!
Kíktu til dæmis á eftirfarandi Interrail miða sem gera þér kleift að ferðast ótakamarkað í 15 daga:
2. Þú endar beint í miðbænum!
Eftir langa ferð er langbest að taka bara skóna sína og fara beint á hótelið/hostelið áður en ævintýrið í borginni byrjar. Þegar þú ferðast með lest um Evrópu stoppar lestin í flestum tilvikum beint í miðbænum. Það er því sniðug hugmynd að bóka hótel/hostel fyrirfram nálægt lestarstöðinni og þannig munt þú bæði spara þér tíma og orku sem þú getur þá frekar nýtt í að kanna og upplifa nýja áfangastaðinn.
3. Það er ekki bara áfangastaðurinn heldur vegferðin!
Interrail ferðir snúast ekki bara um að komast frá A til B. Ferðin sjálf er oft alveg jafn mikil upplifun og áfangastaðurinn. Hallaðu þér því aftur og horfðu út um gluggann á allt sem getur blasað við þér þar.
4. Þú hittir heimamenn
Þegar þú ferðast með Interrail lest í útlöndum hittir þú fólk allstaðar að. Í lengri lestarferðum er erfitt að komast hjá því að spjalla ekki við sessunauta þína um allt milli himins og jarðar. Ef þú ert heppinn getur þú meira að segja lent á spjalli við heimamenn sem geta gefið þér öll bestu ráðin um áfangastaðinn á meðan lestarferðinni stendur.
5. Þú skorar á ímyndunaraflið
KANNAÐU EVRÓPU...
Í Evrópu bíða þín fullt af spennandi áfangastöðum svo pakkaðu selfie stönginni í bakpokann! Þar taka á móti þér skemmtilegar borgir og falleg náttúra sem erfitt er að upplifa án þess að ferðast með lest. Skoðaðu okkar tillögur að Interrail ferðum eða búðu til þína eigin!
...MEÐ SVEIGJANLEGUM INTERRAIL MIÐA
Interrail miðar gera þér kleift að ferðast eins mikið um Evrópu og þú vilt á föstu verði. Þú getur valið um Interrail miða sem hentar þér hvað best en þeir geta gilt frá allt að tveimur vikum og upp í þrjá mánuði. Um leið og þú ert komin/n með miðann bíða þín ævintýri í Evrópu þar sem þú getur ferðast um 31 land.