Suður-Afríka: Hinn fullkomni áfangastaður fyrir vandláta ferðalanga
Suður-Afríka er svo sannarlega töfrandi áfangastaður en af hverju? Vegna þess að þar finnur þú allt! Töfrandi strendur, stórborgir, landslag og ótrúlegt dýralíf bæði á landi og í sjó. Ef þú ert ekki sannfærð/ur um að Suður-Afríka er staðurinn til að vera á þá höfum við tekið saman 5 frábærar upplifanir sem munu gera þér kleift að verða ástfangin/n af fallegu Suður-Afríku!
The Adventure Club sjálfboðastarfið í Höfðaborg
Langar þig að sameina sjálfboðastarf við ferðalagið þitt til Suður-Afríku? Þá gæti þetta verkefni verið eitthvað fyrir þig en það er eitt af vinsælustu sjálfboðastörfunum sem við bjóðum upp á í Suður-Afríku. Ásamt því að láta gott af þér leiða fyrir börnin á svæðinu eru allar líkur á því að þú vaxir og þroskast sem manneskja.
Í sjálfboðastarfinu munt þú nýta flesta daga utandyra og á ströndinni með börnunum á svæðinu. Kynntu þér sjálfboðastarfið betur.
8 daga surf 'n' stay í Höfðaborg
Við höldum okkur við surfheiminn en Suður-Afríka er einn besti áfangastaður í heiminum til að fara að surfa. Þessi 8 daga dvöl í surfbúðum í Höfðaborg gefur þér tækifæri til að læra að surfa eins og atvinnumaður! Einnig er frábært andrúmsloft í búðunum þar sem þú kynnist öðrum ungum einstaklingum allstaðar að úr heiminum. Staðsetningin er einnig frábær! Þú finnur varla betri stað til að kanna Höfðaborg og læra að surfa á sama tíma.
Innifalið er gisting, 7 x morgunmatur, notkun búnaðar, samgöngur á ströndina og surfkennsla.
Kannaðu dýralífið í safarí í Kruger þjóðgarðinum
Kruger þjóðgarðurinn er í einungis nokkurra klukkutíma fjarlægð frá Jóhannesarborg og er einn besti staðurinn í heimsálfunni til að kanna dýralífið sem Afríka státar sig af. Þá erum við líka að tala um hin stóru 5 eða "the big 5" eins og fíla, ljón, hlébarða, nashyrninga og vísunda. Búðu þig undir ferð um þjóðgarðinn með öðrum ungum og ævintýraþyrstum einstaklingum.
Sjálfboðastarf við the Big Cat Centre
The Big Cat Centre er staðsett í um 30 km frá Kimberly, nálægt landamærum Free State og Northern Cape í Suður-Afríku. Hér getur þú fengið tækifæri til að vinna hjá einu vinsælasta dýralífssjálfboðastarfinu í Suður-Afríku. Markmið verkefnisins er að ala upp og sjá um dýr með það að leiðarljósi og markmiði að dýrunum verði sleppt aftur út í náttúruna þegar þau eru hæf til þess. Þú ásamt sjálfboðaliðum allstaðar að úr heiminum munuð aðstoða við þetta verkefni.
Road trip um Suður-Afríku
Landslagið í Suður-Afríku er ótrúlega fallegt og því er road trip frábær leið til þess að kanna það! Þú flýgur annað hvort til Jóhannesarborgar eða Höfðaborgar, leigir síðan húsbíl eða bíl og keyrir um eitt fjölbreyttasta land heims. Vertu viss um að kíkja á Drakensberg fjöllin, keyra eftir Garden Route og njóta kósí strand þorpanna meðfram strandlengjunni.