Kostir þess að ferðast ein/n
Er enginn annar sem vill ferðast en þú? Að ferðast ein/n er ekki jafn erfitt og þú heldur svo ekki gera þau mistök að hætta við þó þú finnir ekki ferðafélaga. Við tókum saman 7 kosti þess að ferðast án ferðafélaga.
1. Þú kynnist nýjum hliðum á sjálfum/sjálfri þér
Þú átt eftir að þurfa að takast á við margar nýja áskoranir og uppgötva að það sem í fyrstu virtist vera risastórt vandamál reyndist í raun og veru auðvelt að leysa. Þannig kynnist þú nýjum hliðum á sjálfum/sjálfri þér og munt geta tekist á við nýjar áskorarnir þegar þú kemur heim úr ferðalaginu.
2. Það er auðveldara að kynnast öðrum ferðalöngum en þú heldur
Það er ekki vegna þess að þú ert að reyna meira heldur finnst öðrum oft auðveldara að byrja að tala við einhver sem situr ein/n. Svo lengi sem þú ert á stað þar sem aðrir bakpokaferðalagar eru þá átt þú ekki eftir að eiga í vandræðum.
3. Þú stjórnar ferðinni
Það er algjörlega undir þér komið hvað þú vilt sjá og gera. Þú ert frjáls eins og fulginn og getur breytt ferðaplönum eins og þér hentar.
4. Það er næstum alltaf laust pláss á hostelinu
Þegar þú ferðast ein/n eru mun meiri líkur á því að það sé laust rúm fyrir þig á hostelinu. Þetta er sérstaklega þægilegt þegar þú ákveður að breyta ferðaplönum þínum skyndilega og nærð ekki að bóka fyrirfram.
5. Þú þarft aðeins að hugsa um sjálfa/n þig
Þú getur gert það sem þú vilt þegar þú vilt það. Borðaðu þegar þú ert vilt og stoppaðu þegar þú ert þreytt/ur. Þú átt líklega eftir að eiga að eiga erfitt með að skilja hvernig þú fórst að því að ferðast með öðrum áður.
6. Þú verður sjálfstæður ferðalangur
Þú átt mjög líklega eftir að verða sjálfstæðari eftir ferðina. Þú lærir hvernig þú getur tæklað mismunandi aðstæður sjálfur án þess að þurfa aðstoð eða styrk frá öðrum.
7. Þú getur ýkt sögurnar
Það a enginn eftir að leiðrétta þig þegar þú segir ferðasöguna! Við erum nú ekki að tala um að ljúga, en hver hefur ekki gaman að smá kryddaðri sögu!