Okkar bestu road trip ráð í Bandaríkjunum
1. Skipulag
Það er margt sem þarf að skipuleggja áður en þú leggur af stað í road trip um USA. Hefurðu t.d. pælt í því hvað þú ætlar að keyra margar mílur á dag? Gullna reglan er ca 18 mílur á dag. Ef þú ætlar t.d. að fara í 17 daga road trip um Kaliforníu skalt þú ekki gera ráð fyrir að keyra meira en 17x18=360 mílur. Þá getur þú tekið pásu frá því að keyra nokkra daga en það mun ekki koma í bakið á þér seinna í ferðinni. Reglan virkar! Sjáðu nokkrar vinsælar road trip leiðir hér.
2. Veldu rétta bílinn
Hver er draumabílinn þinn? Convertible Mustang! Já við skiljum það.... Convertible Mustang er snilld, en langar þig að keyra um í opnum bíl á 80 km/klst hraða í kannski 3-5 tíma á dag með næstum ekkert pláss fyrir farangurinn? Og ekki gleyma eldsneytiskostnaðinum, eyðir um 8-9 lítrum á hundraði! Í öðrum orðum - veldu frekar hagstæðari bílinn sérstaklega ef þú ert að fara að ferðast um í lengri tíma. Okkar reynsla er sú að flestir enda á því að stækka við sig þegar þeir mæta á staðinn - sem kostar mun meira en að bóka rétta bílinn frá upphafi. Ekki gleyma því að þú hefur einnig möguleika á að leigja húsbíl. Þar hefur þú allt sem þú þarft - fararmáta og gistingu!
3. Eldsneyti
Eldsneytisverðið er oftast mun dýrara inn í borgum eins og Los Angeles, San Francisco, San Diego og Chicago. Mundu eftir því að fylla tankinn áður en þú heimsækir þær.
4. GPS!
Já, GPS tæki er snilld! Eins og hvað það getur verið gaman að villast aðeins þá er oft skemmtilegra að vita svona nokkurn veginn hvert maður er að fara. Þú getur:
- leigt það með bílnum
- komið með þitt eigið
- keypt GPS tæki í Walmart
- notað símann og keypt símakort á staðnum
Hvað sem þú velur þá er alltaf einnig mjög sniðugt að vera með "Rand McNally Roadmap" en það gefur þér ráðleggingar um hvað sé sniðugt að gera og sjá á þeim stöðum sem þú heimsækir
5. Fjárfestu í kæliboxi
Já þú heyrðir rétt! Fyrir 5-10 dollara átt þú eftir að geta keypt ágætt kælibox. Njóttu þess að drekka kalda drykki á ferðalaginu! Það á einnig eftir að spara þér pening.
Ef þú ætlar þér að ferðast um í húsbíl þá þarft þú ekki að hafa áhyggjur þar sem það er oftast ískápur eða kælir í bílnum.
6. Bókaðu gistingu fyrirfram
Hafðu í huga að ef þú ætlar þér að heimsækja einhverja af hinum frægu þjóðgörðum Bandaríkjanna þá gætir þú þurft að bóka gistinguna fyrirfram. Gisting í þjóðgörðum eins og Yosemite, Yellowstone, Grand Canyon, Arches, Zion, and Bryce Canyon á til að vera fullbókuð - sérstaklega yfir háannatímann. Athugaðu einnig að ef þú ert á húsbíl þá gætir þú þurft að bóka pláss á tjaldsvæðinu fyrirfram.
7. Tónlistin
Hvað er road trip án góðrar tónlistar? Allir bílar eru með útvarp og í flestum nýrri bílum er hægt að tengja síma eða MP3 spilara og þannig hlusta á sína eigin tónlist. Ef þú ert með Spotify (premium áskrift) getur þú gert playlistana þína aðgengilega offline.
8. Bílastæði
Hafðu í huga að bílastæði í stórborgum eru langt frá því að vera ókeypis. Að leggja yfir nótt í borgum eins og L.A., San Francisco, New York og Miami kostar vanalega á milli 20 og 50 USD á nótt. Kannaðu því vel áður hvort bílastæði sé innifalið í gistingunni sem þú bókar.
9. Vegatollar
Þú átt eftir að rekast á vegatolla í flestum fylkjum Bandaríkjanna. Mundu því eftir því að vera með lausan pening og KLINK í bílnum þar sem á nokkrum stöðum er ekki gefið til baka.
10. Að fara yfir landamærin
Hvað má og hvað má ekki? Fara frá Bandaríkjunum til Kanada og öfugt? Já ekkert mál! Fara frá Bandaríkjunum til Mexíkó? Nei!