Að ferðast með rútu er ein vinsælasta leiðin til þess að ferðast fyrir bakpokaferðalanga. Fyrst og fremst vegna þess að það er ódýrt en einnig vegna þess að það býður upp á ákveðinn sveigjanleika og tækifæri til að hitta bæði heimamenn og aðra bakpokaferðalanga.
Við bjóðum upp á rútuferðir og rútupassa á ýmsum stöðum í heiminum eins og til dæmis Ásralíu, Nýja-Sjálandi, Suður-Ameríku, Mið-Ameríku, Asíu og Suður-Afríku.
Ef þú ert ekki alveg viss hvaða tegund henti þér best getur þú haft samband við okkur og við aðstoðum þig við að finna þann rútupassa sem hentar þér best.
Fá fría ráðgjöf