Ferðafélagar
Með hverjum fær maður bestu ferðaupplifunina? Það er erfitt að segja þar sem við erum öll ólík og með mismunandi skoðanir um hvað það varðar. Sumum finnst best að ferðast einir á meðan aðrir vilja ávallt hafa margmenni í kringum sig. Það fer allt eftir þér; með hverjum viltu upplifa stórkostlega staði og hluti? KILROY hefur tekið saman kosti og galla ólíkra ferðafélaga.
Aleinn
Að ferðast einn er mikil áskorun. Þú sérð einn um alla skipulagningu og hefur lítinn stuðning ef eitthvað kemur uppá. Á hinn bóginn þá þarftu aldrei að gera málamiðlanir og frelsistilfinningin er algjör. Þar að auki kynnast margir sem ferðast einir fullt af nýju fólki því þeir "neyðast" til að vera opnari við ókunnuga en fólk sem ferðast saman. Í rauninni er það svoleiðis hjá mörgum sem leggja einir af stað í reisu að þeir ferðast nánast ekkert einir þar sem þeir eignast svo mikið af
samferðarfólki á leiðinni. Veröldin er full af ferðamönnum sem eru opnir og spenntir fyrir að kynnast öðru fólki.
Konur að ferðast einar
Það er engin ástæða fyrir því að þú sem kvenmaður getir ekki ferðast ein í bakpokaferð. Það eina sem þarf að hafa í huga eru venjur og siðir í því landi sem þú heimsækir. Því skaltu reyna að skera þig ekki of mikið úr til þess að forðast að ögra eða móðga fólkið í landinu, en það á einnig við um karlmenn.
Vinir
Þegar þú ferðast með öðrum deilið þið ábyrgð og það er gaman að geta rifjað upp skemmtilegar sögur þegar heim er komið. Áhættan við að ferðast tveir saman í langan tíma er að vinskapurinn gæti endað þvingaður og það getur auðveldlega sett leiðinlegan blett á ferðina. Það er auðveldara þegar fleiri vinir ferðast saman, en á móti kemur að erfiðara er að taka sameiginlegar ákvarðarnir.
Kærustupar
Kærustupar geta verið ástfangin uppfyrir haus einn daginn en í hörkurifrildi hinn daginn. Þannig gengur það líka fyrir sig á ferðalaginu. Til að tryggja meiri kærleik og minni rifrildi á ferðalaginu er alltaf gott að ræða hlutina til mergjar áður en lagt er af stað. Ákveðið ráðstöfunarfé (ef það er sameiginlegt er ráðlagt að skammta vasapening), ákveðið ábyrgðarhlutverk og ákveðið ferðaáætlunina í smáatriðum.
Með börn
Bakpokaferðalag með litlum börnum er ekki eitthvað sem við mælum með. Ef þú tekur með þér lítið barn vertu þá viss um að hafa nóg af góðum pásum á ágætum hótelum inn á milli framandi staðanna og leyfðu barninu að njóta sín. Eldi börn (12 ára og eldri) eru mun líklegri til þess að geta notið þess að ferðast með þér á bakpokaferðalaginu.