Ferðaskjöl
Það er mikilvægt að vera búinn að fá öll viðeigandi skjöl fyrir brottför. Þegar þú færð flugmiðana þína senda frá KILROY, vinsamlegast athugaðu hvort að dagsetningarnar og allar staðsetningar séu réttar. Athugaðu einnig að nafnið þitt sé eins í vegabréfi þínu og á flugmiðum og öðrum ferðaskjölum. Þegar allt virðist vera í góðu lagi þá er góð hugmynd að prenta alla miða og upplýsingar út og hafa þá meðferðis.
Afrit á rafrænuformi
Vertu svo viss um að eiga afrit af öllum þessum skjölum á tölvupóstinum þínum. Með því er mun auðveldara að prenta eitthvað út ef það týnist.