Gisting
Við mælum með því að þú bókir fyrstu næturnar á hverjum stað áður en haldið er af stað. Það er alls ekki gaman að lenda í því að vera í nýju landi, á óþekktum flugvelli eftir að hafa flogið í nokkra klukkutíma og vera ekki með stað til að sofa á.
Bókaðu gistingu á öllum helstu áfangastöðunum
Við mælum alltaf með því að áður en þú kemur á áfangastaðinn að þú sért búin að bóka gistingu, sérstaklega eftir langt flug. Þú þarft ekki að bóka meira en eina nótt eða þú getur bókað 2-3 nætur, skoðað borgina, og haldið svo áfram þú hefur valið.
Bakpokaferðalangar gista á hostelum
Þegar þú ert að ferðast sem bakpokaferðlangur þá leitar þú að hostelum eða annari ódýrari gistingu. Þjónustan og þægindin eru mismundandi eftir áfangastöðum, en almennt ættir þú ekki að búast við einhverjum lúxus nema þú sért tilbúinn til að borga fyrir alvöru hótel.