Kvartanir
Flestir ferðamenn lenda í því að eitthvað fer úrskeiðis þegar þeir eru að ferðast í nokkra mánuði. Það gæti verið að maður missi af rútunni eða að maður hoppar upp í lest sem fer á rangan áfangastað, kannski vegna þess að þú fékkst slæmar leiðbeiningar eða skildir ekki upp né niður í skiltunum. Svona er lífið og þetta er hluti af því að ferðast! Og hver veit, kannski á þetta eftir að verða mesta ævintýrið í ferðinni og þú endar á stað eða í aðstæðum sem þér hefði aldrei dottið í hug.
Fyrir alvarleg vandamál, sem koma upp og þú verður að fá lausn á, ef eitthvað fer t.d. úrskeiðis varðandi flugbókun, ævintýraferð, gistingu eða leigu á bíl, þá verðurðu að bregðast strax við. Vinsamlegast hafðu samband við þá manneskju sem tengist vandamálinu þínu, þetta gæti verið KILROY ráðgjafi þinn eða leiðsögumaður eða sölumaður hjá bílaleigunni o.s.frv. Ef þú gerir ekkert í lengri tíma eða bíður með þetta þar til að þú ert kominn heim, þá gætirðu lent í því að fá ekki endurgreitt eða fá ekki annarskonar bætur.
Þú skalt alltaf reyna að skrá niður allar staðreyndir og fá skýrslur (written reports) en það ætti að auðvelda allt og gera það hraðvirkara. Flest vandamál geta verið leyst á meðan ferðalaginu stendur, á meðan aðrar deilur er aðeins hægt að leysa þegar þú kemur aftur heim.