Menningarsjokk
Að koma til nýs lands getur verið nokkuð erfið áskorun, sértaklega ef þú ert að koma beint frá heimalandi þínu og til staða eins og Indlands, Kína, dreifbýli afríku og jafnvel til Suður-Ameríku. Hitinn getur verið óbærilegur, mikil læti á götum, mengun og ryk um allt og ómögulegt að skilja tungumálið og mögulega ert þú ekki alltof spenntur fyrir matnum sem er á boðstólnum og hóstelið þitt er staðsett fyrir ofan næturklúbb! Þetta er eins vont menningarsjokk og það gerist.
Menningarsjokk - Hluti af upplifuninni
Allir ferðamenn munu upplifa einhverskonar menningarsjokk þegar þeir koma til nýs lands sem er öðruvísi en heimaland þeirra; hvað varðar menningu, trú og tungumál o.fl. Menningarsjokk geta verið mis mikil en það er hluti af ferðalögum og stundum ástæðan hvers vegna við ferðumst. Við erum að sækjast eftir einhverju sem við getum ekki fundið heima, eftir nýjum og spennandi hlutum, og flestir ferðalangar munu aðlagast lífinu á örfáum dögum.
Vertu viðbúinn
Besta leiðin til þess að tækla Menningarsjokk er að undirbúa sig fyrir það sem mun koma; lesa um áfangastaðinn, kynna sér hefðir heimamanna og hvernig skal takast á við hversdagslega hluti eins og að kaupa sér mat, þjórfé, gera þarfir sýnar og spyrja til vegar o.s.frv. Að lesa ferðablogg getur verið gagnlegt til að kynna sér betur áfangastaði eða hvernig ferðamenn eiga að prútta.