Siglingar eru frábær leið til þess að slaka á, leyfa vindinum að leika um hárið og sjá ótrúlegt dýralíf og útsýni. KILROY býður upp á ævintýralegar siglingar um marga fallegustu staði heims. Siglt er á ólíkum skipum (allt frá litlum skútum til stórra seglskipa) og ferðirnar eru mislangar; frá einum degi upp í nokkrar vikur.
En sigling er ekki bara sigling. Við erum með ólíkar siglingar út um allan heim svo að þú getir prófað að sigla um karabíska hafið á milli hitabeltiseyjanna sem þar liggja, mikilfenglegra jökla og allt þar á milli. Finndu góðan stað á þilfarinu og fylgstu með litríkum fiskum, selum, höfrungum eða mörgæsum á meðan þú siglir um. Sigldu af stað á vit ævintýranna!