Að ferðast í skipulagðri ferð með öðrum ferðalöngum og eignast nýja vini frá öllum heimshornum er frábær leið til að upplifa nýja staði! Skipulögðu ferðirnar okkar fara fram í litlum hópum sem samanstanda af alþjóðlegum ferðamönnum. Skipulagða ferðin er eins og nafnið gefur til kynna, vel skipulögð svo þú getur einbeitt þér að því að fara að skoða, upplifa og skapa ógelimanlegar minningar!
Fá fría ráðgjöf
Afhverju að fara í skipulagða ferð?
Þegar þú ferð í skipulagða ferð með okkur getur þú verið viss um að þú færð að upplifa það besta sem svæðið sem þú ferðast til hefur upp á að bjóða. Með hverjum hóp er enskumælandi leiðsögumaður sem býr yfir ómetanlegri þekkingu á staðnum sem þú ert að heimsækja. Þannig færðu meiri og dýpri þekkingu um staðina heldur en ef þú værir að ferðast á eigin vegum.
Gistingar, máltíðir og samgöngur í skipulagðri ferð
Allar gistingar og samgöngur í skipulögðum ferðum eru innifaldar og þó að sumar máltíðir séu innifaldar líka, þá viljum við ekki taka frá þér að láta það eftir þér að fara út og uppgötva matargerðina á staðnum á eigin vegum.