Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Hér má sjá kort af ferðaleiðinni. Flettu áfram til að skoða ferðaáætlunina.
Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga sem við höfum sett saman. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Finndu þér sæti í lestinni, settu playlistann í gang í heyrnartólunum og hallaðu þér aftur á meðan borgir og falleg náttúra þýtur fram hjá glugganum þínum er þú ferðast til Lissabon.
Við höfum tryggt þér gistingu fyrstu næturnar þegar þú kemur til Lissabon en þú munt dvelja á sjálfbæru hosteli í miðbænum - en það er varla betri leið til að byrja ævintýrið í borginni!
Í Lissabon snýst allt um að ganga eða taka sporvagn. Þetta er auðvitað frábær æfing (hver þarf það ekki?) og gefur þér aðra sýn á borgina. Lissabon er mjög falleg og geymir einnig geggjaða matarmenningu.
Í Cascais færðu 4 daga til að hugsa um líkama og sál. Í jóga færðu tækifæri til að endurhlaða batteríin, finna þinn innri frið og njóta samverustunda með bakpokaferðalöngum allastaðar að úr heiminum. Jógabúðirnar eru staðsettar í stuttri göngufjarlægð frá ströndinni í Cascais og umhverfið þar er stórkostlegt.
Þegar jógatímanum þínum er lokið er kominn tími til að halda aftur til Lissabon þar sem þú sækir húsbílinn þinn og ferð í stórkostlegt ferðalag um fallegt landslag Portúgals.
Þú ræður förinni næstu vikuna! Hvert þú vilt fara, hvaða leið þú vilt fara og hvað þú vilt upplifa á leiðinni, er allt undir þér komið. Að fara í road trip er ein skemmtilegasta leiðin til að ferðast svo við höfum bókað fyrir þig húsbíl í 7 daga. Ef þú vilt leigja bílinn lengur en það, þá þarftu bara að nefna það við okkur og við græjum það fyrir þig.
Þá er road tripi þínu lokið og þú skilar húsbílnum í Porto. Duoro áin skiptir borginni niður svo það er að finna fullt af notalegum stöðum við bakka árinnar þar sem þú getur drukkið morgunkaffið eða síðdegisdrykkinn. Borgin státar af glæsilegu myndlistarlífi og ef þú vilt æfa danshreyfingarnar þínar þá er hér líka gott og mikið næturlíf.
Við höfum bókað fyrir þig gistingu á einu af okkar uppáhalds hostelum í Portúgal. Það er fullt af bakpokaferðalöngum og skemmtilegri stemmingu.
Innifalið í verðinu er, eins og við höfum nefnt, 5 daga Interrail passi, svo þú ættir að eiga ferðadaga eftir núna þegar þú heldur áfram á næsta áfangastað.
Ef þú vilt stytta ferðina geturðu alltaf valið flugmiða í staðinn til og frá Portúgal. Við hjálpum þér að skipuleggja ferðina þína heim - hvaða kost sem þú kýst.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.