Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Keflavík - Dúbaí - Sri Lanka - Maldíveyjar - Kuala Lumpur - Keflavík
Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Ferðin hefst í stórborginni Dúbaí. Þar getur þú skoðað hæstu byggingu heims og fleiri ótrúlega skýjakljúfa. Ef þér finnst gaman að versla þarftu að fara í hið risastóra Dubai Mall en þar finnur þú allar helstu tískubúðirnar, allskonar lúxusmerki og eitt stærsta fiskabúr í heimi.
Sandur og sól! Langar þig að fara um eyðimörkina á fjórhjóli, hitta kameldýr og upplifa einstaka matarmenningu? Við mælum með!
Sri Lanka er dásamleg eyja í Suðaustur-Asíu. Hér finnur þú magnaða sörfstaði og ef þú hefur enga reynslu er tilvalið að skella sér í surfskóla. Að auki verður þú að fara í magnað safarí og fylgjast með fílahjörðunum í Yala þjóðgarðinum, skoða hofin og fossana í Ella og upplifa magnað útsýni á World´s End.
Maldíveyjar er sannkölluð paradís og ekki að ástæðulausu! Hvítar strendur, kristaltær sjór, pálmatré sem vaggast rólega í vindinum og ekki má gleyma að þar rignir næstum aldrei og hitastigið er í kringum 30°C allt árið um kring. Nýttu tækifærið og finndu þinn innri styrk í einstöku umhverfi og ef þú ert ekki komin með köfunarprófið þá mælum við með því að læra að kafa á Maldíveyjum.
Það er létt að verða ástfangin af Kuala Lumpur! Þessi asíska stórborg býður upp á söguleg hof eins og Batu Caves, verslunarmiðstöðvar, framandi markaði og flotta rooftop staði til að njóta útsýnisins. Borgin er nefnilega fyrst og fremst þekkt fyrir flotta skýjaklúfa. Þar er næst hæðsta bygging í heimi og frægu Petronas tvíburaturnarnir.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.