{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
Regnbogi málaður á götu í San Francisco
Sjá sem lista

Lengd

Þú ræður

Áfangastaðir

Amsterdam, Barcelona, Lissabon, Rio de Janeiro, Kólumbía, Mexíkó, Kalifornía, New York & Kanada

Hápunktar

Stemningin í Ríó & maturinn í Mexíkó

Verð frá

455.000 ISK

Viltu vita meira?
Farið er til spennandi áfangastaða sem eiga það allir sameiginlegt að vera nokkrir af mest „gay-friendly" áfangastöðum í heiminum. Í þessari reisu er hægt að njóta lífsins á ströndum Spánar, skoða Golden Gate brúnna í San Francisco, upplifa stemminguna í Brasilíu, borða ljúffenga matinn í Mexíkó og margt fleira. Búðu til minningar sem aldrei gleymast!

 

ATH: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

Innifalið
  • Flug
  • ISIC kort
  • Ferðaráðgjöf
Ekki innifalið
  • Gisting
  • Staðbundnar samgöngur
  • Skipulagðar ferðir
alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

1. Ferðaáætlunin✈️

Keflavík - Amsterdam // Prag - Barcelona - Lissabon (Portúgal) - Rio de Janeiro (Brasilía) - Kólumbía - Cancún (Mexíkó) - Los Angeles // San Francisco - New York - Kanada - Keflavík
// = ferðast landleiðis á eigin vegum eða í skipulagðri ferð

Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.

2. Amsterdam (Holland) 🇳🇱

Byrjaðu ferð þína í Evrópu. Við mælum sérstaklega með fallegu borginni Amsterdam.

3. Barcelona (Spánn) 🇪🇸

Barcelona er ein af skemmtilegustu borgum Evrópu og þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Frábæra tapas bari, flottar strendur, einstakan arkitektúr, merkilega sögu, fallega garða, fjölbreyttar verslanir og skemmtilegt næturlíf.

4. Lissabon (Portúgal) 🇵🇹

Portúgal er áfangastaður sem hefur upp á ótal margt að bjóða; menningarupplifun, ósnortnar sveitaperlur ásamt kósý þorpum og borgum, góðan mat og ljúffeng vín. Hlustaðu á Fado, þjóðlagatónlist Portúgala en þessi einstöku lög fjalla um sársauka og ást.

5. Rio de Janeiro (Brasilía) 🇧🇷

Rio er vinsælasta borg Brasilíu og upphafsstaður margra sem leggja leið sína til landsins. Rio hefur á sér frábært orðspor og hún stendur svo sannarlega undir því. Það er ekki að ástæðulausu að borgin er kölluð Cidade Maravilhosa – hin dásamlega borg. Borgin er full af skemmtun, afslöppun, ævintýrum, sól og hita, verslun, ástríðu, lífsþorsta, ljúfu fólki og ekki má gleyma hinni fullkomnu blöndu af stórborgar- og sólarferð. Jafnframt er útsýnið yfir borgina og umhverfi hennar svo stórkostlegt að þú trúir því varla.

6. Cartagena (Kólumbía) 🇨🇴

Kólumbía er land sem kemur öllum skemmtilega á óvart. Falleg náttúra og heillandi menning einkenna landið.

7. Cancún (Mexíkó) 🇲🇽

Mexikó snýst um að sleppa af sér beislinu og leyfa landinu að draga sig á tálar og heilla sig upp úr skónum. Mikil gleði ríkir á ströndum Mexíkó, maturinn er frábær og nóg er af þjóðardrykk landsins, Tequila. Viva Mexico!

8. Kalifornía (Bandaríkin) 🇺🇸

Kalifornía er drauma áfangastaður þeirra sem dýrka sólina, ströndina og hafið. Að sýna sig og sjá aðra - það er það sem lífið snýst um í Kaliforníu. En ekki gleyma að það er meira að sjá hér en fjölbreytt mannlífið. Þetta risastóra fylki býður upp á allt sem þú getur óskað þér: langar strendur, skíðasvæði, frægar stórborgir, bestu skemmtigarðana og heimsfræg náttúruundur. Það er ómögulegt að láta sér leiðast í “Gullna fylkinu!”

9. New York (Bandaríkin) 🇺🇸

New York býður upp á svo marga möguleika og spennandi hverfi að þú munt óska þess að þú þyrftir ekki að eyða tíma í svefn. Þar sem New York sefur aldrei getur þú farið að versla klukkan ellefu að kvöldi og farið á næturklúbb klukkan tíu að morgni.

10. Vancouver (Kanada) 🇨🇦

Kanada er drauma áfangastaður ferðamanna sem vilja upplifa óbyggðir og hina sönnu fegurð Norður-Ameríku. Fólkið í Kanada er afar vingjarnlegt og borgir eins og Vancouver, Toronto og Montreal eru virkilega skemmtilegar. Athugaðu að Kanada er eitt af stærstu löndum heims.

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.