Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Heim - Los Angeles - Honolulu - Koko Head - Waimanalo Bay - Kailua - Valley of the Temples - Windward Coast - Waimea Bay - Haleiwa - Plains of Oahu - Honolulu - Heim
Mundu að þetta er aðeins ferðatillaga fyrir stóru ferðina. Ef þú vilt fá aðstoð við að hanna road tripið að þínum þörfum þá skaltu skrifa okkur og fá fría ráðgjöf. Og eitt enn! Þegar þú ferð í road trip er gott að vera með góða ferðatryggingu, við getum aðstoðað þig við kaup á slíkri.
Við höfum bætt við komupakka með 3 nóttum á Venice Beach í Los Angeles til að brjóta upp ferðina til Hawaii. Ekki hafa áhyggjur, Los Angeles er geggjuð! Skoðaðu andrúmsloftið á Venice Beach, farðu í notalega gönguferð meðfram Venice Canals eða drekktu í þig lífinu í líflegu Santa Monica. Ef þú leigir bíl hér ættirðu að fara í ferð til Griffith Observatory þar sem þú munt fá stórkostlegt útsýni yfir borgina. Eftir 3 daga hér skaltu fara um borð í flugvélina og halda áfram til Oahu þar sem road tripið bíður þín.
Þú byrjar í höfuðborg Hawaii - Honolulu. Gríptu surfbretti og náðu fullkomnum öldum á Waikiki Beach eða farðu í göngutúr í Ala Moana Park milli Waikiki Beach og miðbæjar Honolulu. Bishop Museum & Planetarium og Iolani Palace eru líka þess virði að heimsækja. Og kannski mikilvægast; ekki missa af hinu fallega eldfjalli Diamond Head.
Stuttu frá suðaustur af Honolulu finnur þú Koko Head. Skoraðu á sjálfan þig og farðu upp meira en 1000 þrepa stigann upp á topp Koko Head gígsins. Verðlaunin? Útsýni sem er svo stórkostlegt að þú gleymir strax að þú gast næstum ekki andað á leiðinni hingað.
Ertu tilbúin/n fyrir ströndina? Waimanalo Bay er ein flottasta strönd sem þú getur ímyndað þér. Kristaltært sjór og sandur hvítur eins og snjór.
Fyrir utan að hafa fallegar strendur, er Kailua vel þekkt fyrir vinsæla Kailua bændamarkaðinn þar sem þú getur keypt frábærar local kræsingar. Ef þú ert aktív týpa þá mælum við með því að þú farir Maunawili Falls gönguleiðina. Mundu bara eftir réttum skóm þar sem hún getur orðið ansi drullug.
Staðsett í gróskumiklum dal við rætur Ko'olau-fjallanna, skoðaðu þennan fallega minningargarð. Landslagið hér er alveg töfrandi og gróðurríkt. Hér munt þú líka finna eftirlíkingu af japanska Byodo-In búddistahofinu.
Stoppaðu meðfram Windward Coast sem býður upp á fullt af spennandi gönguleiðum og Nuuano Pali Lookout sem býður upp á stórkostlegt útsýni. Einnig Nakoa gönguleiðinni í Kahana Valley þjóðgarðinum og Makua Ridge gönguleiðinni.
Taktu þér smá pásu í Waimea Bay á norðurströnd Oahu. Þetta er einn frægasti staður Hawaii fyrir surf á veturna og á sumrin er heimsókn í grasagarðinn Waimea Valley nauðsynleg. Ef þú ert meira fyrir lífinu undir yfirborðinu ættirðu að fara að snorkla í Shark's Cove.
Nú þegar road tripið hefur tekið þig til Haleiwa er aftur skylda að fara að surfa. Ehukai-ströndin í grenndinni er hluti af lengsta surfsvæði heimsins. Ef öldurnar verða ógnvekjandi skaltu synda með brettið undir hina frægu Haleiwa-brú eða njóta sólsetursins í Alii Beach Park.
Í hjarta Oahu finnur þú mikið úrval af afþreyingu. Skoðaðu gróskumiklu bæina, þar á meðal hina alræmdu Dole Plantation, heimsóttu nokkrar af stóru verslunarmiðstöðvunum eða farðu í göngutúr í einu af litlu hawaiísku þorpunum.
Nú ertu komin/n aftur þar sem ferðalagið byrjaði. Á leiðinni frá miðbæ Oahu VERÐUR þú algjörlega að stoppa við hina goðsagnakenndu Pearl Harbor. Eftir eina viku á veginum átt þú skilið að halla þér aftur á ströndinni, drekka Blue Hawaiian og njóta. Ahh! Farðu svo aftur að surfa.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.