Ghana er eitt vinalegasta land í heimi! Þar getur þú farið í spennandi safarí, slappað af á gullfallegum ströndum og upplifað framandi borgarlíf. Landið er fullkomið fyrir forvitna bakpokaferðalanga.
Hvað á ég að gera í Ghana?
Ghana hefur upp á mikið að bjóða. Sigldu um Tadane ánna og heimsæktu hið fræga þorp sem byggt er á stultum yfir ánni. Stoppaðu við í fallega sjávarþorpinu Elmina og njóttu þess að kynnast menningunni. Farðu til Cape Coast og heimsæktu kastalann sem var einn af stærstu þrælamörkuðunum í Afríku. Upplifðu hina magnþrungnu stund að horfa á dyrnar "of no return". Það má líka ekki gleyma því að heimsækja konungshöllina,um sex tíma akstur frá Accra.
Ghana býður upp á margar skemmtilegar gönguleiðir. Við skorum á þig að ganga upp hæsta fjall Ghana, Mount Afadjato og upplifa þar einstakt útsýni.
Accra - litrík höfuðborg Ghana
Upplifðu hið litríka borgarlíf í Accra. Þar finnur þú markaði sem eru þess virði að heimsækja. Þar er að finna markaði með fjöldan af áhugaverðum matvælum. Ekki borða neitt áður en þú ferð þangað þar sem þú verður að smakka eins marga rétti og þú getur. Aðrir markaðir bjóða upp á mikið af skemmtilegum minjagripum. Mundu eftir að fara yfir reglurnar varðandi prútt!
Accra er þekkt fyrir skemmtilegt næturlíf og finnur þú þar marga skemmtilega bari og dansstaði. Upplifðu það hvernig hin afríska og vestræna tónlist blandast saman. Daginn eftir er síðan ekki langt fyrir þig að slappa af á ströndinni. Kíktu við á Coco ströndina og njóttu lífsins.
Hvað á ég að borða í Ghana?
Maturinn í Ghana er frábær, sérstaklega ef þú ert hrifinn af sjávarréttum! Þú verður að smakka fufu, sérréttur heimamanna, en það er einskonar þykk bolla gerð úr annaðhvort korni eða rótargrænmeti. Fufu er oft borðað með öðrum réttum og nota heimamenn það sem einskonar skeið. Við skorum á þig að prufa! Ef þig langar að læra meira um matargerð er frábært að skella sér á matreiðslunámskeið þar sem þú bæði lærir að elda og smakkar á öllum sérréttum heimamanna.
Að ferðast um Ghana
Almenningssamgöngur í Ghana eru almennt góðar og er Ghana STC mjög þæginlegur ferðamáti. Þú getur hins vegar ekki alveg reitt þig á tímatöfluna þeirra. Ef þú ert að flýta þér þá mælum við með leigubíl.