Kenía hefur upp á ótalmargt að bjóða og það er ekki að ástæðulausu að það er talið eitt af bestu löndunum til að ferðast um með bakpoka. Þar eru gullfallegar hvítar strandlengjur, stórbrotið landslag og þar geturðu upplifað dýralíf eins og í sjálfri Lion King. Þjóðréttir Kenía og ávaxtadýrðin er eitthvað sem er um að gera að njóta á meðan þú liggur í hengirúmi við kristaltæran sjó. Leyfðu okkur að hjálpa þér að skipuleggja þín draumaferð og bóka flug til Keníu í dag!
Höfuðborgin Naíróbí
Það eru miklar líkur á að ferðalagið þitt hefjist í höfuðborginni Naíróbí. Athugaðu að borgin er í um 1500 metrum yfir sjávarmáli og því líklega ekki eins heitt þar og þú heldur. Miðbær Naíróbí er ekkert sérlega heillandi en hins vegar eru nálæg úthverfi skemmtileg og þess virði að heimsækja. Þú ættir að prufa 'Nyama Choma' á næsta staðbundna veitingastað en það er grilluð geit sem er einstaklega bragðgóð! Eftir máltíðina getur þú svo skorað á heimamenn í billjard og spilað undir berum himni.
Gönguferðir í Kenía
Njóttu stórbrotna útsýnisins þegar þú gengur um sigdalinn, East African Rift. Njóttu kyrrðarinnar í litlu afskekktu þorpi og þegar sólin sest og kertaljós er eina lýsingin skaltu ekki gleyma því að horfa upp í stjörnubjartan himininn.
Fyrir reynda göngugarpa er algert skilyrði að upplifa sólarupprásina við Lenana, sem er einn af tindum Mount Kenya. Það tekur þig um fjórar til fimm klukkustundir að ferðast að rót fjallsins með 'matatu' farartæki, frá Nairobi.
Safarí í Kenía
Þegar þú ferðast um undraverðar gresjur Masai Mara eru miklar líkur á að þú sjáir uppáhaldsdýrin þín en á svæðinu búa yfir 3 milljónir spendýra. Upplifðu heim dýranna í magnaðri safaríferð. Bókaðu nokkurra daga leiðangur um Masai Mara, Lake Naivasha og Lake Nahuru og fylgstu með nashyrningum, flóðhestum, ljónum, sebrahestum og gíröffum í sínu náttúrulega umhverfi.
Strandlengja Kenía
Sjávarréttirnir við strandlengju Kenía eru himneskir! Þegar þú ert búinn að borða skaltu njóta bragðsins af ferskum berja-hristing (þú verður að prófa ástríðuávöxt með banönum og mangó) á meðan þú liggur og flatmagar í hengirúmi og horfir á sólsetrið yfir hafið og perluhvíta ströndina.
Heimsæktu Lamu eyju þar sem tíminn stendur í stað og bílar eru bannaðir. Asnar eru vinsæll flutningsmáti sem skapar afslappaða og einstaka stemmningu. Leitaðu í höfninni að skipstjóra sem er til í að taka þig á 'dhow'. Á þessum heimabyggða viðarbáti geturðu veitt þér til matar og notið fallegs útsýnis eyjunnar.