Það er einstök upplifun að ferðast til Lesótó. Þar finnur þú óspillt og ævintýralegt landslag. Stór hluti af landinu er fjalllendi þar sem þú finnur margar heillandi gönguleiðir. Landið er oft kallað himnaríki á jörðu og er það ekki að ástæðulausu. Það er tilvalið að taka sér smá frí frá Suður-Afríku og ferðast yfir til Lesótos!
Hvað er hægt að gera í Lesótó?
Dreymir þig um að ferðast um á hestbaki og upplifa óspillta náttúru? Í Lesótó finnur þú mikið um afskekkt og óspillt svæði sem er tilvalið að kanna á baki á Basotho smáhesti. Einnig er það frábær leið til þess að upplifa náttúruna.
Í lægri hlutum landsins finnur þú skemmtilega bæi og borgir þar sem þú getur upplifað einstaka menningu og verslað handverk sem aðeins finnast þarna.
Þú mátt ekki missa af því að heimsækja Sehlabathebe þjóðgarðinn. Hann er mjög einangraður og þú munt upplifa náttúruna eins og hún leggur sig. Skelltu þér í gönguferð eða reiðtúr og upplifðu einstaka fossa.
Semonkon, Malealea og Sani Pass eru helstu fjalllendin í Lesótó. Eins og áður hefur komið fram eru þessi svæði einnig mjög afskekkt og óspillt og er besta leiðin fyrir þig til að upplifa þau að fara í skipulagða ferð. Njóttu einstaka útsýnisins yfir fallega dali og þorp.
Hvernig er best að ferðast til og um Lesótó?
Það er einfalt fyrir þig að ferðast til Lesótó frá Suður-Afríku. Þú finnur daglega rútuferðir á milli Underber í Suður-Afríku og Mekothlong í Lesótó. Ef þig langar ekki að sitja í rútu þá eru einnig flug daglega á milli Bloomfontein í Suður-Afríku og Maseru, höfuðborg Lesótó.
Hvenær á ég að ferðast til Lesótó?
Hitastigið í Lesótó er mjög breytilegt eftir árstíðum. Yfir veturinn (maí - september) getur hitastigið fallið niður fyrir frostmark, sérstaklega yfir köldustu mánuðina júní og júlí. Sumrin (janúar – febrúar) eru vanalega heit og rök en hitinn er á þessum tíma frá 15 - 35°C.