Madagaskar er draumatökustaður fyrir heimildamyndir um náttúrulíf - skrítin og skemmtileg dýr eða þykka og fallega, blómstrandi regnskóga. Það geta allir tekið undir að þessi staður á sér engan sinn líkan hvað varðar náttúrulíf.
Madagaskar er fjórða stærsta eyja í heimi með um 21,1 milljón íbúa. Þetta einstaka land og samnefnd eyja er staðsett í Indlandshafi við austurströnd Afríku. Höfuðborg Madagaskar er Antananarivo þar sem hægt er að finna alla grunnþjónustu og verslanir. Eyjuna er hægt að nálgast með bæði flugi og bátsferðum.
Einstakt dýralíf Madagaskar
Madagaskar er heimili 5% alls dýralífs í heiminum og flestar dýrategundir landsins er ekki hægt að finna neins staðar annars staðar á jörðinni. Þekktustu dýr landsins eru eflaust lemúrar (þökk sé teiknimyndinni vinsælu), en í Madagaskar finnast yfir 100 tegundir lemúra. Náttúra eyjunnar er líka einstök en þar finnast um 10.000 mismunandi plöntutegundir og yfir 80% af plöntutegundum landsins lifa hvergi annars staðar í heiminum. Flestir ferðamenn fara til suðurhluta eyjarinnar þar sem eru fallegir þurrir regnskógar. Í austrinu eru síðan hitabeltisregnskógar.
Hvað á ég að sjá og gera í Madagaskar?
Dreymir þig um að snorkla eða kafa í sjónum með hvölum? Þá ættir þú að fara til Ifaty í júlí eða ágúst en á því tímabili ferðast hvalirnir í gegnum Mósambíksundið. Anakao er staður sem er þekktur fyrir flott köfunarsvæði. Þeir sem elska strendur geta farið norður af Ifaty.
Park National de l’Isalo er þjóðgarður með frábærar gönguleiðir! Þar eru fossar og gljúfur sem eru flottari en allt sem þú getur ímyndað þér. Byrjaðu gönguna í Ranohira þorpi. Það er þess virði að ganga lengra en bara á vinsælustu gönguslóðunum til þess að njóta alls þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða. Farðu líka að skoða La Maison d’Isalo sem er flott náttúruminjasafn. Þar eru margir frábærir hlutir sem tengjast náttúrulífi eyjunnar og menningu hennar útskýrðir á skemmtilegan hátt. Park National d’Andohahela og Parc National D’Ankarafantsika eru líka frábærir viðkomustaðir fyrir þá sem elska náttúruna.
Svæðið í kringum Locaro Peninsula er þakið indælum ströndum og regnskógum. Þetta er áfangastaðurinn fyrir þá sem vilja eyða nokkrum nóttum í tjaldi.
Að ferðast á milli staða í Madagaskar
Þú getur komist að eyjunni með báti eða flugvél. Það er hægt að fljúga frá Evrópu og Afríku, t.d. frá Jóhannesarborg eða Naíróbí. Bátsferðir eru frá austurströnd Máritíus, í Toamasina. Innanlands er hægt að ferðast með flugi, lest eða rútu. Samt sem áður ef þú vilt finna áfangastaði sem eru jafnvel enn afskekktari og rólegri ættir þú að gera ráð fyrir því að það gæti tekið lengri tíma þar sem vegirnir eru almennt slæmir. Þetta er ekki alltaf auðveldasti staðurinn til að skoða náttúruna en þvílík verðlaun fyrir þá sem láta sig hafa það!
Okkar ráð!
Það eru nokkrar reglur sem ferðamenn ættu að tileinka sér og virða þegar þeir ferðast til Madagaskar. Eyðing regnskóganna er stækkandi vandamál svo þú ættir að hugsa þig tvisvar um þegar kemur að því að kaupa eitthvað sem unnið er úr viði eða úr kórölum.