Malaví er staðsett í suðaustur hluta Afríku og á landamæri að Mósambík, Tansaníu og Zambíu. Það er tiltölulega auðvelt að ferðast um landið en mundu að vegalengdir geta verið miklar. Í dag er ekki mikið um ferðamenn í Malaví svo drífðu þig áður en hinir uppgötva þessa perlu!
Hvað á ég að gera í Malaví?
Allir sem ferðast um Malaví verða að heimsækja Lake Malawi, þriðja stærsta vatn Afríku. Þar finnur þú fallegar strendur, kristaltært vatn og litríka fiska. Hvort sem þig langar að kafa, snorkla, sigla um á kayak, liggja í sólbaði á ströndinni eða spila strandblak við heimamenn þá er það hægt við Lake Malawi. Ekki missa af því að heimsækja Kande Beach, Nkhata Bay og Monkey Bay!
Þó að Malaví sé frekar lítið land (miða við önnur lönd í Afríku) þá eru ótrúlega margir afþreyingarmöguleikar í boði. Eftir að hafa notið lífsins við Lake Malaví getur þú heimsótt einhvern af átta þjóðgörðum landsins (eða alla) og farið í snilldar safarí.
Landslagið í Malaví er einnig mjög fjölbreytt og eru margir möguleikar fyrir þig að fara í göngu-, hjólreiða-, og hestaferðir. Við mælum með því að ganga upp á Mt. Mulanje eða keyra um Zomba Plataeu fjallgarðinn. Ert þú frekar að leitast eftir menningarlegri upplifun? Stoppaðu við í einhverjum að litlu vinalegu þorpunum og fylgstu með mannlífinu.
Lilongwe - höfuðborg Malaví
Lilongwe er ótrúlega græn borg og þú átt mjög líklega eftir að eiga í vandræðum með að finna sjálfan miðbæinn. Borgin er skipt í tvo hluta, gamla og nýja bæinn, og á milli þeirra finnur þú Lilongwe Nature Sanctuary. Ef þú ert að fljúga beint til Malaví þá er það hér sem þú munt lenda! Við mælum með því að þú stoppir við í Lilongwe í einn til tvo daga, það er kannski ekki mikið um afþreyingu en frábært að kynnast menningunni.
Hvernig er að ferðast um Malaví?
Það er auðvelt að ferðast um Malaví. Landið er tiltölulega öruggt og vegir eru almennt góðir en stundum getur reynst erfitt að nálgast bensín. Þú finnur almenningssamgöngur á flestum stöðum en þær geta verið mjög mismunandi hvað varðar gæði og þægindi.
Ef þig langar í meiri þægindi mælum við með því að þú bókir skipulagða ferð. Þar ferðast þú um með litlum hóp af öðrum ferðalöngum. Einnig frábær ferðamáti þegar þú hefur takmarkaðan tíma og langar að upplifa allt!