{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
tanzania-savannah-zebras-airballoons-cover
tanzania-people-walking-green-lush-sidebar

Ferðalag til Tansaníu

Það er svo sannarlega hægt að finna alls kyns afþreyingu í Tansaníu. Hvar sem áhuginn liggur, þá geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Hanga í hengirúmi á hvítum ströndum og synda í kristaltærum sjó? Fara í nokkra daga göngu upp hæsta fjall Afríku og upplifa magnað landslag? Verða vitni af mögnuðu dýralífi í framandi þjóðgörðum Tansaníu? Ekki láta þetta stókostlega land framhjá þér fara og skelltu þér í ævintýri!

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að gera í Tansaníu?

Höfuðborgin Tansaníu er Dar Es Salaam og hún samanstendur af skemmtilegri blöndu af afrískri, arabískri og indverskri menningu. Nútímaborgin Dar Es Salaam er hávaðasöm og erilsöm en veitir skemmtilega nasasjón af lífinu í stórborgum Afríku.

Heimsæktu hinn gríðarstóra Karialoo markað, stærsti markaður í Tansaníu, sem er pakkaður af suðrænum vörum og mat sem þú hefur líklega ekki séð áður. Kannaðu næturklúbbana og upplifðu hamagang afrískrar tónlistar. Bæði norðan og sunnan megin við borgina eru lítil þorp við sjávarsíðuna þar sem þú getur tjaldað beint á ströndinni. Það er algjörlega þess virði að eyða nokkrum dögum í Dar Es Salaam áður en þú heldur lengra inn í landið til að upplifa stórbrotna náttúru og dýralíf.

Fá meiri upplýsingar um hvað er hægt að gera í Tansaníu

Norður-Tansanía - Náttúran, dýralífið og gönguferðirnar

Í norðri finnur þú hinn sanna kjarna Afríku. Hérna færð þú tækifæri til að upplifa ótrúlegt dýralíf og einstakar náttúruperlur eins og fjallið Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku. Reimaðu á þig gönguskóna og búðu þig undir að komast á toppinn. Það eru nokkrar leiðir til að komast upp fjallið og getur þú t.d. valið gönguferðir sem taka allt frá sjö til 14 daga. Leiðin upp getur verið ansi erfið en afrakstur erfiðisins skilar sér tífalt tilbaka!

Í hinum fræga Gombe Stream þjóðgarði getur þú fylgst með simpönsum í sínu náttúrulega umhverfi. Garðurinn er mjög nálægt landamærum Búrúndí, á mörkum Tanganiyka vatns, og eina leiðin til að ferðast þangað er á bát. Kannast þú við söguna af Jane Goodall, sem síðan 1960 hefur rannsakað atferli simpansa? Í Gombe finnur þú rannsóknarmiðstöð sem nefnd er eftir Jane og ef þú ert heppinn getur þú rekist á kvenkyns simpansann Fifi, sem var aðeins þriggja ára þegar Jane Goodall byrjaði rannsóknir sínar. Menn og simpansar deila 98% af erfðavísum sínum, svo þér gefst hér sjaldgæft tækifæri til að horfa í augu fjarlægs frænda. Auk heimsfrægu simpansana er hægt að sjá aðrar apategundir og bavíana. Garðurinn er einnig heimili yfir 200 fuglategunda!

Við enda Tanganiyaka vatns nálægt landamærum Sambíu er fossinn Kalambo. Fossinn er 235 metra hár og er annar stærsti foss Afríku. Til gamans má geta að Glymur, hæsti foss Íslands, er 190 metra hár. 

Fá meiri upplýsingar um Tansaníu

Safaríferð - upplifðu heim dýranna!

Safarí þýðir að ferðast á Swahili, þú ferðast um og fylgist með dýrum í sínu náttúrulega umhverfi. Það er einstök tilfinning að upplifa heim dýranna með eigin skilningarvitum. Bókaðu magnaða safaríferð í hinum fræga Serengeti þjóðgarð þar sem þú átt eftir að sjá ljón í sólbaði, fíla á röltinu og gríðarstórar dýrahjarðir á beit. Nokkurra daga ferð um Serengeti er eitthvað sem þú átt aldrei eftir að gleyma!
Arusha er annar þjóðgarður og er minni en Serengeti. Þar er mjög fjölbreytt náttúru- og dýralíf. Hápunktar garðsins eru Ngurdoto gígur, Momela vötn og Meru fjall.

Fá meiri upplýsingar um safarí í Tansaníu

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.