{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
manila-philippines-city-sky-sunset-cover
el-nido-philippines-islands-drone-view-sidebar

Filippseyjar

Ef þú ætlar í heimsreisu um suðaustur Asíu máttu alls ekki gleyma að fera í ferð til Filippseyja! Filippseyjar er magnaður áfangastaður fyrir bakpokaferðalanga. Þar finnur þú frábæran mat, góða gististaði, hjálpsamt fólk, græna regnskóga og virka eldgíga! Landið samanstendur af um 7.000 eyjum og á hverri eyju finnur þú guðdómlegar strendur og litríkan sjó. Landið var áður fyrr nýlenda, fyrst Spánverja svo Ameríkana og það eru tvö opinber tungumál á Filippseyjum; enska og tagalog (filippínska).

Fá fría ráðgjöf

Hvað á ég að gera á Filippseyjum

Flestir ferðamenn hefja ferðina í Manila, á Luzon eyjunni, vegna flugsins en þaðan er förinni svo yfirleitt heitið til Cebu eyjar. Hún er minni og talin huggulegri en hin stóra Luzon. Frá Cebu getur þú svo auðveldlega skipulagt dagsferðir til margra hrífandi eyja.

Á ferð þinni á milli Cebu og Bohol er náttúruundrið Chocolate Hills, um 1268 hólar sem eru um 30 - 50 m á hæð . Athugaðu að það er ekki hægt að ganga um sjálft svæðið en þú færð frábært útsýni.

Á Bohol geturðu séð hið sjaldgæfa Tarciers dýr sem líkist hinum fræga Yoda úr Star Wars! Tarciers er skemmtilegt lítið dýr sem situr í trjám og borðar ávexti. Við mælum einnig með skemmtisiglingu á ánni Lobok þar sem þú getur eytt nokkrum dögum og notið stórkostlegrar náttúru.

Fá meiri upplýsingar

Að kafa á Filippseyjum

Áhugamenn um köfun dragast að Filippseyjum sem eru heimsþekktar fyrir ríkt sjávarlíf og ógrynni góðra köfunarsvæða. Hér opnast bókstaflega gnægð lífs og litar um leið og þú stingur höfðinu ofan í. Ekki missa af því að skoða hinn sökkvandi kirkjugarð eða "the sunken semetery", sem er alvöru kirkjugarður sem er sokkinn undir sjávarmál. Það eina sem sést af garðinum á yfirborðinu er einn stór kross. Vegna þessa er staðurinn einstakur og afar vinsæll til köfunar.

Gönguferðir á Filippseyjum

Ef þú hefur áhuga á göngu ættir þú að ferðast til eyjarinnar Camiguin sem er nálægt Cebu og Bohol. Þar finnur þú skemmtilegar gönguleiðir, eldfjöll og heitar lindir. Reimaðu á þig gönguskóna og upplifðu náttúruna í nýju ljósi!

Hvenær er best að ferðast til Filippseyja

Besti ferðatíminn er frá desember til apríl þegar það eru engir fellibylir og þurrara loftslag en samt ekki of heitt. Veðrið er almennt frekar rakt og heitt.

Nýju ári er fagnað með miklum flugeldum eins og á Íslandi en Filippseyjar hafa það fram yfir Ísland að þar er hiti! Um miðjan janúar er gaman að fylgjast með hinni skrautlegu og litríku Sinulog trúarhátíð sem á sér stað árlega í Cebu. Hátíðarhöldin standa yfir í 9 daga og það er klárlega vel þess virði að koma og taka þátt.

Fá meiri upplýsingar

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.