Í Peking finnur þú mörg af frægustu kennileitum Kína; Kínamúrinn, Himnahofið (e. Temple of Heaven), Forboðna borgin (e. Forbidden City) og Sumarhöllin. Peking hefur þetta allt saman og meira til!
Við mælum með:
- Kínamúrinn: Þú getur ekki sleppt því að heimsækja Kínamúrinn! Leiðin er Simatái til Jinshanling er frábær kostur fyrir útirvistarferðalanginn en hún er um fjögurra klukkustunda ganga. Þar sem sú leið fer yfir minna endurgerða hluta múrsins krefst hún ákveðinnar hæfni sem leiðir til að færri ferðamenn eru á þessum slóðum.
- Forboðna borgin og himnahofið: Það er einstök upplifun að ganga inn fyrir borgarmúra Forboðnu borgarinnar. Þar finnur þú gríðarstórt opið svæði sem afmarkast af gömlum rauðmáluðum byggingum og fallegum gylltum þökum. Mættu þangað snemma að morgni en þá eru mun færri ferðamenn á ferlinu. Svolítið lengra í suðurátt er stór garður þar sem Himnahofið stendur.
- Sumarhöllin: Gerðu heimsókn þína í Sumarhöllina að dagsferð, þar sem hún er í raun frekar garður heldur en höll. Frá toppnum getur þú horft yfir vatnið og jafnvel séð glytta í útlínur háhýsi borgarinnar, Peking. Ef er ekki of mikið að gera þarna er þetta frábær staður til að slaka á.
- Tiananmen torg: Á ferðalagi þínu um Peking máttu ekki missa af stærsta torgi heims (500 x 880 metrar). Þar má sjá Kínverja sitja og láta tímann líða, fólk að iðka Tai Chi og börn að leika sér með flugdreka. Á Tiananmen torgi byggði Mao Zedong grafhýsi sitt, þar sem þú getur enn séð smurðan líkama hans. Farðu snemma á fætur einn morguninn og fylgstu með athöfninni þegar fánarnir eru dregnir að húni við torgið.
Kannaðu „hutong" borgarinnar
Vertu skapandi, leigðu hjól og hjólaðu í gegnum "hutongs" (gömul hverfi með þröngum stígum). Stoppaðu og fáðu þér ferskt "baozi". Þú munt njóta bragðsins af þessu gufusoðna deigi sem fyllt er með kjöti eða grænmeti. Þar sem þú ert strax til í að prófa kínverska matargerð ættir þú að fá þér Peking önd, veldu lítinn stað sem þú sérð að íbúar borgarinnar versla. Þeir eru bestir! Þar sem kokkarnir tala líklega ekki annað tungumál en mandarínsku er líklega besti kosturinn að benda á hráefnin. Þú getur líka gengið um og bent á eitthvað sem aðrir eru að borða, en þú munt aldrei vita hvað var í því!
Annað skemmtilegt!
Til að upplifa nútímamenningu Kínverja ættir þú að fara á karókí bar, syngja lag með Bítlunum eða jafnvel Elvis Presley! Nefndu bara orðið "Karaoke" við Kínverja og hann mun fylgja þér á fullkominn bar. Kvöldið verður stórskemmtilegt, ekki síst ef þú tekur Kínverja með þér. Mundu að "campei" þýðir "skál í botn"!