Þó svo að Vientiane sé mun rólegri borg en nágrannaborgir hennar þá á þér ekki eftir að leiðast. Farðu og skoðaðu Vientiane Patuxai, Laos útgáfan af Sigurboganum, sem sýnir vel hin frönsku áhrif frá nýlendutímanum. Farðu efst upp á Patuxai og upplifðu einstakt útsýni yfir Mekong ánna. Einnig mátt þú ekki missa af því að heimsækja Pha Tat Luang hofin sem eru staðsett rétt fyrir utan borgina. Það er mögnuð upplifun að standa fyrir fram þessi gullhúðuðu hof. Hofin Wat Prha Kep og Wat Sisaket eru einnig þess virði að heimsækja.
Að versla í Laos - mundu eftir því að prútta
Ef þig langar að versla hina týpísku minjagripi eru Talat Sao eða Morning Market þeir markaðir sem þú ættir að heimsækja. Þar finnur þú allskonar raftæki, fatnað, úr og skartgripi. Athugaðu að Morgunn markaðurinn er í raun opinn allan daginn þrátt fyrir nafnið! Á þessum stöðum getur þú gert góð kaup, en mundu að prútta.
Buddha garðurinn
Í um það bil 24 km fjarlægð frá miðbænum finnur þú hinn fræga búddagarð Wat Xieng Kuan. Garðurinn er byggður upp með það hugarfar að sameina trú og menningu en þar finnur þú magnað safn af steyptum skúlptúrum af bæði hindúa og búdda guðum sem og frægum einstaklingum. Það sem gerir garðinn síðan enn skemmtilegri að hann er staðsettur við Mekong ánna þar sem þú finnur einnig skemmtilega veitingastaði. Njóttu þess að ganga um garðinn og borða frábæran mat á einstökum stað!
Hvar er best að gista í Vientiane?
Ferðamannafjöldinn í Laos er alltaf að aukast og hefur því fjöldinn af gistimöguleikum aukist á sama tíma. Í Vientiane getur þú valið gistingu á allt frá 5 stjörnu hótelum niður í ódýr farfuglaheimili. Best er að ganga eftir götunum í kringum Nam Phu Square en þar eru flestir gistimöguleikarnir í boði. Athugaðu að í kringum háannatímann er sniðugast fyrir þig að panta gistingu fyrirfram svo þú lendir ekki í að allt sé fullbókað.
Að ferðast um Vientiane
Vientiane er fullkomin borg fyrir gangandi vegfaranda. Annar möguleiki er að leigja hjól en þá hefur þú einnig möguleika á að skoða útjaðar borgarinnar. Njóttu þess að hjóla meðfram Mekong ánni og mundu eftir að stoppa og bragða á framandi ávöxtum sem þar eru ræktaðir. Ef þú ert hins vegar þreyttur ferðalangur þá er um að gera að hoppa upp í tuk-tuk.
Það er auðvelt að ferðast til og frá Vientiane með rútu. Í borginni eru þrjár umferðarmiðstöðvar svo mundu eftir því að skoða vel hvaðan þú ert að ferðast! Þú getur einnig keypt miða í rúturnar á öllum ferðaskrifstofum borgarinnar.