Kathmandu er upphafspunktur fyrir mörg ævintýri. Himalaya fjöllin bjóða upp á ótal tækifæri fyrir spennandi jaðaríþróttir og þú getur t.d. farið í kanóferðir, gönguferðir, rafting, frumskógargöngur o.fl. Ef þú vilt njóta dásamlegs útsýnis án þess að fara í mjög erfiða göngu er hægt að fara í nokkurra daga gönguferð að skoða tignarleg fjöll, t.d. að Nagarkot. Ef þú vilt styrkja hug þinn og líkama eru margar jóga- og hugleiðslustöðvar í Kathmandu og nágrenni.
Hvað er hægt að gera í Kathmandu?
Durbar torg er fullt af frábærum hofum og höllum. Torgið er á heimsminjaskrá UNESCO og þar eru haldnar margar hátíðir. Þú ættir m.a. að skoða Durbar Square Museum. Það er gaman að sjá öll hofin en ekki missa af því sem er byggingarlistaverk í sjálfu sér, Taleju hofið sem er það elsta á svæðinu og er með þrjú þök.
Á Thamel svæðinu halda ferðamenn sig að miklu leyti. Hér eru gistihús, barir, netkaffihús og veitingastaðir. Hér má líka finna mat frá öllum heimshornum og þar sem Nepal er kaffiframleiðandi er hægt að fá virkilega gott kaffi á þessum slóðum jafnvel þó að íbúar landsins séu þekktir fyrir að drekka te.
Til að fá gott útsýni yfir borgina ættir þú að fara til Swayambunath sem er aðeins í um 20 mínútna göngufjarlægð frá Thamel. Það þarf að borga aðgangseyri en það er þess virði. Aðeins 8 km frá Thamel og í 1.420m hæð er þorpið Chobhar en þaðan er líka frábært útsýni yfir dalinn sem Kathmandu stendur í.
Boudha Stupa - heilagt svæði í Kathmandu
Boudha Stupa er dásamlegur gimsteinn í Kathmandu. Þetta er eitt heilagasta svæði tíbetska búddista og algjörlega heimsóknarinnar virði. Svæðið samanstendur af mörgum búddahofum með tíbetskum munkum og nunnum sem kyrja möntrur. Þú finnur fyrir tíbetrskri menningu og sjerpamenningu og jafnvel Himalajamenningu. Nálægt Boudha Stupa er hið fallega Shechen klaustur með skemmtilegan veitingastað í garðinum og gistihús.
Hátíðir í Kathmandu sem þú ættir ekki að missa af
Flestar hátíðirnar eru haldnar á Durbar torgi. Holi-litahátíðin í mars er sóðaleg en skemmtileg með lituðu dufti og vatni allsstaðar. Ljósahátíðin, Tihar eða Dipawali er fimm daga hindúhátíð sem er haldin einu sinni á ári í lok október og byrjun nóvember. Bikram nýárið er í apríl og þetta er dagur pílagríma. Uppskeruhátíðin Indra Jatra stendur yfir í átta daga í september. Kvennahátíðin, Teej, er líka í September þar sem ógiftar konur og stúlkur vaka alla nóttina og fagna og biðja fyrir framtíðareiginmönnum sínum á meðan giftar konur klæðast sínum rauðu brúðkaupsklæðum (sari) og heimsækja karlkyns ættingja sína.
Að komast á milli staða í Kathmandu
Það getur verið erfitt að rata í Kathmandu og til að gera hlutina enn meira spennandi eru göturnar yfirleitt ekki merktar. Skoðaðu borgina með því að fara fótgangandi, á hjóli eða jafnvel á vespu. Ef þig langar að fara til nálægra svæða ættir þú að leigja bíl með bílstjóra. Það er ekkert lestarkerfi en þú getur notað rútur, þær eru ódýrar og fara til næstum allra horna landsins. Athugaðu fyrirfram hvort það er lagi með rútufyrirtækið því sum þeirra eru frekar hættuleg.
Öryggi í Kathmandu
Kathmandu er frekar örugg borg. Ofbeldisglæpir gagnvart ferðamönnum eru ekki algengir en þú þarft að gæta þín á vasaþjófum og forðast að vera á ferð eftir myrkur. Athugaðu ástand vega áður en þú ferð úr borginni og passaðu þig á vatninu í Kathmandu, það er næstum banvænt!