Í Chiang Mai er afslappað andrúmsloft, falleg náttúra og mikilfengleg fjöll. Á meðan á dvöl þinni stendur hleður þú batteríin og endurnærir líkama og sál á meðan þú leyfir þér að týnast í dásamlegu umhverfinu. Í ljósaskiptunum lifnar borgin við og þú ættir að vakna líka svo þú missir ekki af öllu fjörinu!
Chiang Mai borg
Þú getur gengið um bæinn eða leigt hjól. Miðbærinn er þéttur og það er auðvelt að komast á milli staða. Það er erfitt að trúa því að það séu 170.000 íbúar í Chiang Mai! Þú finnur Tuk Tuk á hverju götuhorni og ef þú vilt fara lengri vegalengdir getur þú kallað í bekkjabíl, Songthaew, en það er mjög ódýr fararkostur.
Hvað á að gera í Chiang Mai?
Bambus rafting, gönguferðir í frumskóginum, gista í risastóru trjáhúsi eða matreiðslunámskeið; þú færð mikið fyrir peningana þína hér í Chiang Mai. Margir ferðamenn koma á þessar slóðir í Tælandi til að fara í lengri gönguferðir um frumskóginn og það er eitthvað sem við mælum hiklaust með að þú gerir!
Chiang Mai er fræg fyrir ýmislegt, en helst af öllu eru það hofin. Það eru 160 hof á svæðinu og það frægasta er Wat Phra Doi Suthep sem er staðsett í 15 km fjarlægð frá miðbænum. Til að komast þangað þarft þú að klífa 290 heitar og sveittar tröppur en það er alveg þess virði því þegar á toppinn er komið færð þú vegleg verðlaun: magnað útsýni yfir borgina.
Næturlífið í Chiang Mai
Í ljósaskiptunum byrja kvöldmarkaðirnir að stækka. Fljótlega er erfitt að þekkja göturnar sem þú gekkst um fyrr um daginn. Þessir markaðir selja allt sem þú getur ímyndað þér og meira til. Mundu að prútta og passaðu svo að þú sért með nóg pláss í töskunni fyrir allt sem þú ætlar að taka með þér heim! Það er hægt að gera virkilega góð kaup á alls kyns hlutum! Ef þú þreytist á því að versla eru þarna nokkrir góðir klúbbar og barir sem þú getur prófað.
Maturinn í Chiang Mai
Maturinn er, eins og alltaf í Tælandi, virkilega góður. Prófaðu að fara á Ansuarn Market (markaður sem selur mat á kvöldin). Veldu eitthvað girnilegt í litlu sölubásunum, keyptu blöndu af mismunandi réttum og njóttu dásamlegrar máltíðar sem kostar ótrúlega lítið.
Hvernig er best að komast til Chiang Mai?
Það eru nokkrar leiðir til að komast til Chiang Mai. Það hvaða leið þú velur fer eftir því hversu mikinn tíma og pening þú hefur til umráða. Með flugi er ferðalagið bara ein klukkustund frá Bangkok og það er þægilegasta leiðin til að ferðast til borgarinnar (og oft ódýr). Rúta er nokkrum klukkustundum fljótari en lestin, sem tekur 14 tíma.
Veðurfar í Chiang Mai
Passaðu upp á að vera alltaf með hlýja peysu með þér því kvöldin hér geta orðið svolítið köld, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Á regntímabilinu, frá júlí til september, er gott að vera með regnfatnað og góða skó með sér. Heitasta tímabilið er frá apríl til maí.