Stærstu strendur Koh Samui eru Chaweng og Lamai. Af þeim er Chaweng dýrari valmöguleikinn en ef þig langar í partý þá er það staðurinn fyrir þig. Það eru líka hægt að kanna minni og hljóðlátari strendur eins og Strönd Stóra Búdda (Big Buddha Beach) og Bo Phut ströndina.
Hvað á ég að gera á Koh Samui?
Flestir heimsækja Koh Samui til að njóta fegurð strandanna. Bophut bærinn í norðrinu býður upp á friðsælar strendur og allt sem ferðamenn kunna að þarfnast, sérstaklega fjölskyldufólk og bakpokaferðalangar. Það er jafnvel hægt að skella sér í sigling, njóta svæðisins í kringum hafið og hoppa ofan í það.
Fyrir þá sem vilja kafa, þá eru fullt af tækifærum til þess að stunda sportið og ef þú hefur aldrei kafað en langar að læra, þá er mikið framboð af köfunarnámskeiðum. Kraftmiklir vindar geysa við norðurströnd Koh Samui og þangað flykkjast seglbrettakappar milli desember og febrúar.
Flestir ferðamenn gista nálægt ströndinni, svo svæðið innanlands á Koh Samui er næstum ósnert og býður upp á mikla náttúrufegurð, fjöll og gróskumikla skóga.
Annað sem hægt er að sjá og gera eru til dæmis Big Buddha musterið og djúpsjávarköfun og veiði.
Hvað get ég borðað á Koh Samui?
Það er sérstaklega gott úrval fiskrétta og skelfisks á Koh Samui. Meðfram ströndunum er mikið af alþjóðlegum veitingastöðum en það er líka hægt að fá frábæran taílenskan mat á eyjunni.
Að versla á Koh Samui
Ef þú heimsækir hinn Mikla Búdda (Great Buddha) við Bang Rak er það kjörið tækifæri til að versla á flóamarkaðnum fyrir framan innganginn. Þar eru líka margir minjagripabásar og vinaleg kaffihús þar sem tilvalið er að hvíla sig á milli ævintýra á Koh Samui.
Hvernig eru samgöngur á Koh Samui?
Það er hægt að fljúga beint til Koh Samui flugvallarins frá Bangkok, Phuket, Pattaya, Chiang Mai, Singapúr og Hong Kong. Flestir bakpokaferðamenn ferðast með bát frá Surat Thani til Koh Samui.
Þegar komið er til Koh Samui getur þú leigt mótorhjól eða reiðhjól, tekið leigubíl eða notað rútukerfið til að komast á milli.
Veðurfar á Koh Samui
Veðrið á Koh Samui er svipað og annarsstaðar í Tælandi en ívið þurrara á monsoon rigningatímabilinu milli maí og október, og getur því verið frábær valmöguleiki fyrir ferðamenn sem heimsækja Tæland á þeim tíma árs.