Ferð til Phuket býður upp á kristaltæran sjó, frábærar strendur og magnað dýralíf. Ef þú færð leið á því að liggja í sólbaði er margt annað í boði á Phuket eins og snorklferðir, siglingar og köfun. Svo er fullkomið að enda daginn á því að fylgjast með stórkostlegu sólsetrinu á Cape Promthep.
Þeir sem vilja upplifa næturlífið á Phuket verða ekki fyrir vonbrigðum. Það er að finna frábært næturlíf á stöðum eins og Patong Beach, Kata Beach og Karon Beach. Skemmtistaðir eiga að loka klukkan 2 eftir miðnætti en í flestum tilvikum heldur partíið áfram langt fram á nótt!
Ekki síðan láta fallegu kalksteinaklettana í Phang Nga Bay og frægu James Bond eyjuna, Khao Phing Kan, framhjá þér fara. Náttúran í Phuket mun sko ekki valda þér vonbrigðum.
Maturinn á Phuket
Þú finnur fjölbreytta matargerð sem kemur alls staðar að úr heiminum á Phuket. Þrátt fyrir það skaltu samt ekki gleyma því að smakka tælenska matinn en hann er einn sá besti í heiminum að okkat mati. Við mælum með Tom Yang Goong sem er súpa með sterkum rækjum, Massaman Curry, tælensku Dim Sum og einhverju með Satay sósu hvort sem það er kjúklingur, svínakjöt eða rækjur. Spurðu líka heimamennina í Phuket hver uppáhaldsstaðurinn þeirra sé!
Að versla á Phuket
Þú getur keypt næstum allt á Phuket en þar sem þetta er vinsæll ferðamannastaður þá eru hlutirnir ekki eins ódýrir eins og annarsstaðar á Tælandi. Við mælum samt með því að kíkja á markaðina og upplifa menninguna sem skapast þar.
Veðurfarið á Phuket
Veðurfarið á Phuket er heitt og rakt með dagsmeðalhita um 33°C. Rigningartímabilið er frá maí til október en besti tíminn til heimsækja Phuket er frá desember til febrúar en það er einnig hápunktur ferðamannatímabilsins.