Margir telja að Hanoi höfuðborg Víetnams sé ein fallegasta höfuðborg Asíu. Þar er að finna blómstrandi viðskiptalíf, gott kaffi, góðan mat í sölubásum og mikið af hofum, kirkjum og bænahúsum. Þú ættir að upplifa þetta allt saman með okkur.
Hvað á að skoða í Hanoi?
Það merkilegasta að upplifa í Hanoi eru í raun stundir milli stríða. Að sitja á gangstéttarbrún og fá sér Pho Bo (núðlusúpu) og bara horfa á lífið í kringum sig. Þú finnur samtímis fyrir ringulreið og samhljómi. Að fara í gönguferð í gamla hluta bæjarins, annað hvort í vesturátt þar sem þú finnur aðeins nýtískulegri og flottari hverfi, eða halda í norður þar sem að mestu eru enn ókannaðar slóðir og innfæddir segja þér frá lífinu í Víetnam.
Það eru mörg horf, bænahús og markaðir sem hægt er að skoða í og umhverfis Hanoi. Við mælum með að skoða aðra staði eins og Bat Trang sem er borg í grenndinni og þar getur þú fylgst með framleiðslu leirmuna.
Einnig mælum við með ferð til Norður-Víetnam eða til Halong Bay en ef þú hefur ekki tíma fyrir Halong Bay og ert að halda suður, gætir þú farið að skoða Tam Coc sem er um 100km suður af Hanoi og þar getur þú skoðað frábæra kalksteinsmyndun með því að ferðast á hjóli eða með báti á litlum ám.
Hvar á að gista í Hanoi?
Það eru mörg hótel og gistiheimili í Hanoi og mörg bjóða upp á mjög gott verð. Þrátt fyrir snarhækkað fasteignaverð hafa mörg af minni gistihúsum og hótelum farið upp í 3-4 stjörnur. KILROY mælir með að skoða Hanoi fótgangandi og að gista á hóteli eða gistiheimili nálægt Hoan Kiem vatni. Okkur finnst gott að vera við norðurenda vatnsins (eða vesturhliðina) því að þaðan getur þú gengið að flestum áhugaverðum stöðum í miðborginni.