{{ section.name }} Þjónustuver

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

{{ section.name }} Þjónustuver
Leitaðu að áfangastöðum eða að því sem þú vilt gera...

Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'

0 Results found

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að?

Við höfum ferðast um allan heimin og erum því sérfræðingar þegar kemur að ferðalögum. Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að skipuleggja draumaferðina þína.
ho-chi-minh-city-vietnam-traffic-cover
ho-chi-minh-city-vietnam-floating-flower-market-canal-sidebar

Ho Chi Minh (Saigon)

Saigon eða Ho Chi Minh borg er nýtískulegasta og líflegasta borgin í Víetnam. Í norðri breytist veðrið ört og ef þú ferðast frá höfuðborginni Hanoí að Ho Chi Minh borg getur það verið yndislega kælandi á sumrin eða dásamlega gott að koma í hlýjuna á veturna. Hitabeltisloftslag er í borginni sem þýðir um 30 gráðu hiti allt árið um kring. 

Fá fría ráðgjöf

Hvað á að skoða í Ho Chi Minh borg

Það eru margar ástæður fyrir því að eyða talsverðum tíma í Ho Chi Minh borg og hinar mörgu sögulegu minjar eru aðeins ein af þessum ástæðum. Fleiri ástæður eru Reunification Palace, Ho Chi Minh borgarsafnið eða stríðsminjasafnið. Öll þessi söfn sýna hluta af nútímasögu Víetnam og eru algjörlega heimsóknarinnar virði.

Ef til vill eru Cu Chi göngin það áhugaverðasta til að skoða en þau eru staðsett rétt fyrir utan Ho Chi Minh borg. Bygging á göngunum hófst árið 1948 og áttu þau þá að vera felustaður fyrir Viet Minh hermennina sem börðust á móti frönsku herliði. Þar sem staðsetning ganganna var svo hernaðarlega góð var byggingu þeirra haldið áfram í Víetnam stríðinu. Jafnvel þó að Cu Chi göngin séu mjög vel sóttur ferðamannastaður og þar séu nú margar túristabúðir, mælum við hiklaust með því að skoða þau því sú heimsókn gefur innsýn í ákvarðanir Viet Cong liða.

Götueldhúsin í Saigon eru þess virði að skoða og smakka, sérstaklega ef þú færð þér líka hinn fræga bjór „Bia Hoi“.

Kínahverfið (e. Chinatown) eða Tho Lon sem er staðsett í fimmta hverfi, er svæði sem allir verða að skoða. Það er mikið um markaði sem eru iðandi af lífi og þá sérstaklega snemma á morgnana.

Fá meiri upplýsingar

Saigon eða Ho Chi Minh borg?

Nú til dags nefnist borgin Ho chi minh borg en hún fékk nafn sitt eftir Ho Chi Minh (1890 - 1969) fyrsta leiðtoga kommúnistahreyfingarinnar í Víetnam. Gamla heiti borgarinnar, Saigon er enn notað og nota íbúar borgarinnar það meira en nýja heitið. Það er hins vegar talið kurteisara að segja Ho Chi Minh borg.

Fá meiri upplýsingar

Ráð fyrir fólk á ferðinni

Það er mikil umferð í Víetnam en sérstaklega í Saigon! Það er mikilvægt að fara varlega í umferðinni og ganga hægt fram og aldrei ganga aftur á bak. Víetnamskir mótorhjólamenn eru vanir því að beygja framhjá hindrunum á miðjum veginum. Horfðu alltaf í áttina að umferðinni og gerðu sjálfan þig sjáanlegan. Best er að fylgjast með eldra og vanara fólkinu framkvæma þetta, þau veifa höttum eða regnhlífum þegar þau labba yfir.  

Hvar á að gista í Ho Chi Minh?

Á háannatíma ferðamanna (vor og haust) eru bestu hótelin í Ho Chi Minh borg oft full. Þetta hefur yfirleitt ekki áhrif á bakpokaferðalanga því fyrir þá eru margir valkostir í Saigon. Yfirleitt dvelja bakpokaferðalangar í vesturhluta fyrsta hverfis.

Fá meiri upplýsingar

alt

Hannaðu þína eigin ferð til Víetnam

Vilt þú ferðast um heiminn og til Víetnam á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína og velur til dæmis Víetnam sem einn af áfangastöðunum
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt til Víetnam sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding! 

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.