Í Króatíu færð þú Miðjarðarhafs upplifun á lægra verði en í nálægum löndum eins og Grikklandi, Ítalíu og Spáni. Þar finnur þú fallegar strendur, tæran sjó, heillandi landslag, afslappað andrúmsloft, góðan mat og það mikilvægasta er að það er næstum því 100% öruggt að það verði sól og heiður himinn ef þú ferðast þangað yfir sumarið. Ekki láta þetta einstaka land framhjá þér fara!
Fá fría ferðaráðgjöf
Hvað á ég að gera í Króatíu?
Í Dubrovnik er hægt að upplifa einstakan arkitektúr. Njóttu þess að ganga um þröng stræti og anda að þér menningu borgarinnar. Stór kostur er að borgin er ekki langt frá ströndinni!
Plitvice Lakes er þjóðgarður sem er á UNESCO World Hertitage listanum. Þar finnur þú hin þekktu sægrænu vötn innan um dramatíska kalksteins kletta. Þú átt þá einnig eftir að uppgötva að vötnin eiga það til að skipta um lit en það fer eftir þeim steinefnum og lífverum sem eru í vatninu hverju sinni og hvernig sólin skín. Ef um miklar rigningar er að ræða þá átt þú einnig eftir að sjá magnaða fossa renna niður klettana í vötnin. Þessi þjóðgarður er staður sem allir ættu að heimsækja í ferð sinni um Króatíu og mundu eftir því að gefa þér nægan tíma til að kanna svæðið.
Í Zagreb áttu eftir að sjá hvernig það gamla mætir því nýja. Í borginni finnur þú skýjakljúfa innan um sögulegar minjar. Mundu eftir því að heimsækja kaþólsku kirkjuna og þjóðleikhúsið í Zagreb.
Mikið er um sjávarrétti í Króatíu og þú ætti alls ekki að láta hann fram hjá þér fara, þetta er sérgrein þeirra í matargerð. Njóttu þess að borða ferska sjávarrétti á sama tíma og þú horfir á einstakt sólarlag.
Ég vil vita meira
Einstakar eyjur
Við strönd Króatíu finnur þú margar mismunandi eyjur. Langar þig að kynnast matarmenningunni? Heimsæktu eyjuna Vis og njóttu þess að borað og drekka eins og heimamenn. Á eyjunni Brac getur þú prófað mismunandi vatnaíþróttir og á eyjunni Mljet kannað óspillta náttúru. Bestu strandpartýin og næturklúbbana (Kalypso, Papaya og Aquariou) finnur þú á eyjunni Pag. Ef þig hins vegar langar ekki að hitta annað fólk þá er litla eyjan Palagruza tilvalin, þar er aðeins einn viti með tveimur tveggja manna herbergjum. Mundu eftir því að taka með þér matar- og drykkjarbirgðir!
Siglingar í Króatíu
Það er engin betri leið til að upplifa eyjarnar í Króatíu heldur en að skella sér í siglingu. Þá ferðast þú í litlum hóp og leggur af stað í skipulagða ferð sem tryggir það að þú sjáir allt það besta sem eyjarnar hafa upp á að bjóða. Vantar þig aðstoð við að velja réttu siglinguna fyrir þig? Skrifaðu okkur og við hjálpum þér.
Fá aðstoð
Hvenær er best að ferðast til Króatíu - Veðurfar
Króatía er þekkt fyrir heit sumur og milda vetur við ströndina og aðeins heitari sumur og frekar kalda vetur innar á meginlandinu. Háannatíminn er í júlí og ágúst svo ef þú vilt heimsækja landið þegar það eru færri ferðamenn þá er júní eða september málið.
Fá fría ráðgjöf