Christchurch er oft sögð vera „enska borgin utan Englands“ og þegar þú kemur þangað skilur þú af hverju. Íbúarnir eru stoltir af enskum hefðum sínum sem landnámsmennirnir fluttu þangað. Í fjölmörgum görðum, smáum og stórum og í byggingum í gotneskum stíl finnur þú mikið um ensk áhrif. Borgin upplifði mikla hörmunga 2010 og 2011 þegar jarðskjálftar riðu yfir borgina. Við það hrundu eða skemmdust illa margar byggingar í miðbænum sem enn er verið að byggja upp.
Hjarta borgarinnar
Christchurch er háskólaborg með marga frábæra garða og ræktuð svæði. Íbúar borgarinnar telja dómkirkjuna vera hjarta borgarinnar en í jarðskjálftunum hrundi 60 metra hár turn hennar.
Hvað er hægt að gera í Christchurch?
Ef þú hefur áhuga á list eru ýmis tækifæri til að njóta hennar í borginni. Í Art Centre og Observatory getur þú fylgst með yfir 100 listamönnum að störfum.
Þeir sem elska að versla verða ekki fyrir vonbrigðum því hér er frábært úrval af búðum og tískuverslunum. Flestar verslanirnar og kaffihúsin eru á göngugötum í miðborginni en er New Regent Street eflaust sú þekktasta. Þegar fer að kvölda er kominn tími til að búa sig undir næturlíf borgarinnar og eru flestir barirnir miðsvæðis.
Áin Avon rennur í gegnum borgina og er því tilvalið að setjast í „punt“ og njóta rólegheitanna. „Punt“ er lítill flatur trébátur sem minnir á gondóla í Feneyjastíl.
Langar þig að fá magnað útsýni yfir borgina? Farðu í snilldar „gondólaferð” með kláfi! Þessir kláfar fara kílómeters langa leið í um 500 metra hæð yfir sjávarmáli. Mögnuð upplifun en ekki fyrir lofthrædda.
Ef þú vilt fara að surfa eða synda í sjónum finnur þú strönd í Sumner úthverfinu. Fyrir þá sem elska að veiða eru margir veiðistaðir umhverfis Christchurch. Þú ættir ekki að missa af tækifærinu til að synda með höfrungum í Akaroa. Allt þetta er ekki langt frá borginni! Suðureyja er líka þekkt fyrir margar af bruggverksmiðjum Nýja-Sjálands en hægt er að heimsækja flestar þeirra og fá upplýsingar um starfsemina og að sjálfsögðu fá að smakka afurðirnar.
Hvernig er best komast á milli staða í Christchurch?
Samgöngukerfið í Christchurch er mjög skilvirkt ásamt því að það er einnig frábært að skoða borgina fótgangandi.
Ef þú ert að skipuleggja lengri heimsókn og langar að skoða allt Nýja-Sjáland er sniðugt að leigja bíl eða húsbíl. Lífið gæti ekki verið einfaldara! Með því að ferðast um í húsbíl færðu fullkomið frelsi til að ferða á þínum eigin hraða. Það er fullt af tjaldstæðum sem flest eru staðsett í fallegu sveitaumhverfi.
Ef þér finnst ekki gaman að keyra getur þú fjárfest rútupassa sem er sérstaklega hannaður fyrir bakpokaferðalanga. Rúturnar stoppa á áhugaverðum áfangastöðum þar sem þú getur farið inn og út að vild. Í rútunum eru oftast leiðsögumenn sem finnst ekkert skemmtilegra en að fræða þig um landið sitt ásamt því að aðstoða þig við að finna gistingu.
KILROY getur aðstoðað þig við að bóka ferðir ásamt því að veita þér ráðgjöf. Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar!