Sameinuðu arabísku furstadæmin er mjög sérstakur staður, ekki síst vegna mikillar blöndunar aðfluttra og sérstakrar menningar Mið-Austurlanda. Arkítektúrinn er einstakur, veðurfarið er þurrt og heitt og hér eru gullfallegar strendur.
Sameinaða arabíska furstaveldið (SAF) liggur á suðausturhorni Arabíuskaga og eru sambandsríki sjö furstadæma; Abu Dhabi, Dubai, Sharjah, Ajman, Ras Al Khaimah, Umm Al Quwain og Fujairah. Abu Dhabi er höfuðborgin og einnig stærsta furstadæmið. Landið er ríkt af olíu og jarðgasi, en einnig eru erlend fjárfesting og ferðaþjónustan blómstrandi iðnaður. Vegna mikils fjölda erlends vinnuafls er mikill kynjamismunur eða sá mesti í heimi. Hér er hlutfallstalan 2,7, sem þýðir að það eru tvisvar sinnum fleiri karlmenn en kvenmenn. Samt sem áður er mannfjöldinn ansi fjölbreyttur því yfir 80% af fólkinu eru aðfluttir frá öllum heimshornum. Í Dubai búa flestir, og nærri 90% af SAF eru þéttbýliskjarnar. Fáir búa í litlu og dreifðu eyðimerkurþorpunum í kring.
Stórkostlegur arkitektúr
SAF er ríkt land og kemur það skýrt fram í stórkostlegum byggingarmannvirkjum og innslagi arkítektúrsins í borgarskipulaginu. Maður fær á tilfinninguna að hér hafi tekist að framkvæma hið ómögulega. Mannvirki eins og Palm Island, The World, Sports City og Dubai Land eru fáein dæmi. Framfærslukostnaður er hár og fyrir aðkomumann getur verið erfitt að finna hótelherbergi á sanngjörnu verði, þótt margar alþjóðahótelkeðjur hafa byrjað að bjóða uppá ódýra gistingu.
Ferðaafþreying í SAF
Dubai og Abu Dhabi eru vinsælastar, með flottustu hótelin og verslunarmiðstöðvarnar, en einnig eru þær þekktar fyrir sína fjölmörgu og skemmtilegu menningarviðburði. Hér eru líka fullt af flottum ströndum, sérstaklega í Fujairah, sem er einstök perla og tilvalin fyrir þá sem vilja stunda köfun og snorkla. Önnur vinsæl ferðaafþreying og aðdráttarafl eru skipulögðu jeppaferðirnar í gegnum eyðimerkursandana, bílstjórar jeppanna leika sér að því að fara upp og niður sandöldurnar til að skemmta ferðamönnum. Önnur er að fara í dagsferð til Hatta Pools og taka sundsprett í náttúrulegum sundholum sem eru umkringdar stórbrotnum klettum.
Áfengisdrykkja
Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er ekki hægt að drekka áfengi nema á hótelum en í Sharjah er algert bann við allri áfengisdrykkju. Þótt fólk sé almennt frjálslynt og fordómalaust þá er höfð sú regla að allir sem heimsækja SAF verða að virða kvenfólk og lifnaðarhætti múslima.