Grand Canyon er þjóðgarður í Arizona í Bandaríkjunum. Gljúfrið er 446km langt og nær alla leið til Colorado. Colorado River áin, sem rennum um Grand Canyon, hefur skorið út gljúfrið á síðustu sex milljónum árum. Langar þig í að upplifa einstakt náttúruundur? Hafðu samband við ferðaráðgjafa okkar og þeir aðstoða þig varðandi skipulag og bókanir.
Grand Canyon - einstakt náttúruundur
Það var Spánverjinn El Tovar sem uppgötvaði Grand Canyon fyrstur evrópumanna árið 1540, en indjánarnir höfðu þá þegar búið þar í þúsundir ára. Gljúfrið er ekki dýpsta gljúfur í heimi, en það sem er svo sérstakt við gljúfrið er yfirþyrmandi stærðin og hið fjölbreytilega landslag. Stoppaðu og njóttu þess að sjá hvernig litirnir breytast með hreyfingu sólarinnar!
Farðu í ævintýralega ferð um Grand Canyon
Það eru mörg fyrirtæki sem bjóða upp á ferðir um Grand Canyon. Ef þú ert ævintýragjarn getur þú skellt þér í rafting, fjallgöngu, hestbak eða ferðast á fjallahjóli um gilið. Það er fullt af fyrirtækjum sem bjóða upp á frábærar pakkaferðir. Það er líka vinsælt að sjá gljúfrið úr þyrlu eða flugvél, en það er ólýsanlegt ævintýri að upplifa Grand Canyon að ofan frá.
Í Janúar 2006 opnaði “Skywalk” brúin í Hualapai indjána-friðlandinu í vesturhluta gljúfursins. Þar gengur þú út á brú sem er úr gleri og liggur yfir brúnina á gilinu og horfir 1200 metra niður á Colorado ána. Þetta er alls ekki fyrir lofthrædda!
Tilvalið er að bóka gistingu í 2-3 nætur og njóta alls þess sem gljúfrið hefur uppá að bjóða. Horfðu á sólarupprás og njóttu allrar litadýrðarinnar. Grand Canyon býr einnig yfir skemmtilegri sögu og ef þig langar að fræðast nánar um hana ættir þú að skella þér í göngu með leiðsögumanni um svæðið.
Að ferðast um Miklagljúfrið
Þú getur ferðast um Grand Canyon á bílaleigubíl, rútu eða jafnvel lest. Ef þú hyggst skoða norðurbrúnina þá skaltu gá hvort hún sé opin áður en þú leggur af stað. Hún opnar yfirleitt í lok maí og er opin yfir sumarið.
Hvenær er best að ferðast um Grand Canyon?
Hægt er að skoða Grand Canyon allt árið um kring. Vinsælast er að skoða suðurbakkann en þangað getur þú farið yfir allt árið. Norðurbakkinn er aðeins opinn á sumrin og við mælum við með því að þú haldir þig að mestu sunnan megin. Ef þú ætlar að keyra á milli bakkana, búðu þig þá undir að keyra næstum 500 km.
Hitastigið á sumrin í Grand Canyon getur verið upp í allt 40° Celcius. Passaðu því vel upp á það að vera með nægan vökva meðferðis.