Það er eitthvað sérstaklega fágað, heitt og létt yfir Miami. Hér blandast skemmtilega saman líflegir og fjölmenningarlegir borgarhlutar, og larger than life persónuleikar. Já, Miami er svo sannarlega glæsileg, og má segja að hún sé tælandi hrærigrautur af því besta sem lífið hefur uppá að bjóða.
Miami hefur verið valin hreinasta borg Bandaríkjanna. Og það er augljóst af hverju: Það er hreint alls staðar - loftið, vatnið, göturnar og grænu svæðin. Miami er á margan hátt hin fullkomna stórborg, því fyrir utan hreinleikann býður hún uppá allt sem hugurinn girnist: Fyrst er það loftslagið sem er alltaf heitt og fær á sig hálfgerða hitabeltis ímynd.
Miami Beach og Miami Vice
Frábæru loftslagi fylgir fullt af glöðu og léttklæddu fólki. Það eru engar ýkjur þegar sagt er að Miami sé heimsóknar virði bara vegna mannfólksins. Augljóslega er það Miami beach svæðið sem dregur að ferðamenn og ef þú hefur ekki lagt leið þína þangað þá hefurðu ekki séð Miami. Á Miami beach eru frábærar strendur og lífleg útikaffihús sem iða af lífi og góðu andrúmslofti.
Við vatnið er annar sérstakur staður sem þú ættir ekki að láta fram hjá þér fara. Sérstaklega skemmtilegur fyrir aðdáendur hinna gömlu Miami Vice þátta frá 1980-1990. Þetta er Jimbo's og er lítill afskekktur staður beint á móti gríðarstóra, og frábæra, Seaquarium. Jimbo's virðist í fyrstu aðeins nokkrir gamlir og ljótir kumbaldar en þegar betur er að gáð er hér góð stemmning og þægilegt að eyða tímanum. Kumbaldarnir eru í raun bar og heimamenn eru afar vingjarnlegir og til í að spjalla.
Umhverfis Miami
Það eru margir flottir staðir rétt fyrir utan Miami. Til dæmis er þess virði að heimsækja Key Biscayne sem er lítil og falleg eyja með frábærum ströndum. Einnig verðurðu að skoða The Venetian Pool sem er gríðarstór laug sem eitt sinn var stór auð hola með vatnsföllum, kóralrifum og hellum. Laugin er ógurlega stór en á sama tíma ótrúlega falleg og heillandi. Sundsprettur hér er ekki það versta sem þú getur haft fyrir stafni í Miami.