Íbúar Mexíkó elska frítíma sinn og þau elska að njóta hans með vinum og fjölskyldu. Gestir borgarinnar munu hins vegar njóta sömu virðingar og hvar sem þú ferð er vel tekið á móti þér. Hvort sem þú ákveður að skoða fallegar strendur, sögulegar borgir, fornminjar eða forna menningu Maya, Olmeca og Azteca eða annarra þjóðflokka, fallega þjóðgarða í skóglendi, fjöllum og eyðimörkum eða einfaldlega ganga um í einhverri af hinum nýtískulegri borgum, þá vitum við að þú munt elska það sem þú velur þér að gera.
Hvað á að gera í Mexíkó?
Fyrir virka ferðalanga þá hefur Mexíkó upp á margt að bjóða. Hægt er að fara í dásamlegar gönguferðir í eyðimörkinni eða klífa gríðarlega falleg eldfjöll. Aðrir geta valið sér strendur, ár eða kóralrif á 1500 kílómetra Kyrrahafsströndinni til að stunda uppáhalds vatnaíþróttina sína. Það eru margir staðir sem bjóða upp á að kafa og snorkla. Þú getur einnig nýtt tímann til að bæta spænskukunnáttuna þína og farið í málaskóla. Möguleikarnir eru óteljandi!
Strendur
Ef þú ert mikið fyrir lífið á ströndinni ert þú á réttum stað. Nokkrar af bestu ósnortnu ströndunum eru Zipolite og Puerto Escondido sem staðsettar eru á Oaxaca strandlengjunni. Þeir eru meira ferðamannamiðaðir en aðrir skemmtilegir strandbæir eru Cancun, Cozumel, og Playa del Carmen sem eru staðsettir á Riviera Maya. Meðfram Kyrrahafsströndinni finnur þú fallega gististaði á borð við Mazatlan, Manzanillo, Ixtapa og Puerto Vallarta.
Ef þú vilt góða blöndu af sól og ströndum, Maya menningu og köfunar- og snorklstöðum í heimsklassa, farðu þá til Yucatan-skagans.
Kynnstu fornri menningu
Hin forna Mexíkó og Mið-Ameríka voru heimkynni nokkurra af elstu, en um leið þróuðustu, borgríkjum í vestrænni siðmenningu. Það skiptir því ekki máli hvar þú ert; pýramídar, hof og aðrar minjar um hina fornu Mexíkó eru ekki langt undan. Að skoða fornminjar landsins er eitthvað sem allir ferðamenn verða að gera í ævintýraferð sinni í Mexíkó. Hofin og pýramídarnir eru hreint ótrúlegir á að líta og þú lærir svo sannarlega að meta hversu hæfileikaríkir og ráðagóðir þessir gömlu þjóðflokkar voru, fyrir meira en þúsund árum síðan.
Að ferðast um Mexikó
Öll ferðalög í Mexíkó eru með rútum eða ef lengra er haldið þá er gott að fljúga. Rútuferðir í Mexíkó eru virkilega þægilegar og fara til næstum allra bæja og borga. Stórar rútustöðvar í stórborgum gefa góða þjónustu og upplýsingar um fargjöld og leiðarkerfi. Ef þú vilt vera virkilega frjáls og peningar eru ekki vandamál þá er hægt að leigja bíla á flugvöllum, í borgum og við gististaði. Þó að Mexíkó sé nokkuð öruggt land ætti fólk að varast að ganga einsamalt um stræti stórborga, sérstaklega í Mexíkóborg (e. Mexico City). Gjaldmiðill Mexíkó eru Pesos en það er ávallt fínt að hafa ameríska dollara meðferðis.