Kólumbía býr yfir mikilli sögu og landslagið svíkur engan. Stórborgir Kólumbíu koma skemmtilega á óvart þar sem þær hafa upp á ólíka hluti að bjóða. Í Kólumbíu er að finna hita og snjó, pálmatré, villtar ár, lítil þorp og stórborgir, fornar rústir Maya indjánana og arkitektúr spænsku landvinningarmannanna, fátækt og ríkidæmi, litla salsabari og stóra teknóklúbba. Kólumbía býður upp á allt! Leyfðu KILROY að hjálpa þér að skipuleggja þína draumaferð til Kólumbíu!
Amazon frumskógurinn
Finnst þér heillandi að upplifa einfalt líferni? Þá er upplagt fyrir þig að heimsækja Kólumbíska hluta Amazon frumskógarins. Þú getur flogið frá Bogota til Leticia í suð-austur Kólumbíu og uppgötvaðu þessi “endimörk jarðarinnar”. Héðan getur þú gengið til Brasilíu, siglt til Perú, eða siglt um svæðið með heimamönnum á kajak. Leiktu við apa, veiddu píranafiska eða leitaðu að bleikum höfrungum. Heimsæktu infædda indjána sem tala sín eigin einstöku tungumál eða gakktu með sveðju um frumskóginn. Þetta er ólýsanleg upplifun!
Bogotá
Áður var Bogotá miðpunktur pólitískra átaka og borgarastríðs en nú er borgin glansandi miðpunktur Rómönsku-Ameríku. Bogotá er ekki aðeins borg öfganna, heldur í raun borg án takmarkana. Þegar þú keyrir frá suðri til norðurs í þessari 9 milljón manna borg ferð þú frá ótrúlegri fátækt, gegnum miðstéttarhverfi, til ótrúlegs ríkidæmis á einum klukkutíma. Í landi þar sem efnahagurinn samanstendur aðallega af óformlegum mörkuðum, er alltaf nóg að gera á götunum. Það er þar sem allt gerist! Langar þig í eitthvað annað? Hoppaðu upp í lyftu upp á 43. hæð og labbaðu inn á einn besta raf/teknóbarinn í bænum, og upplifðu Bogota að nóttu til frá svölunum!
Medellin
Næststærsta borg Kólumbíu, einnig þekkt sem höfuðborg lýtaaðgerðanna, er Medellín. Fyrir utan það er hún fæðingarborg hins víðkunna listamanns Botero. Þar getur þú skoðað safn helgað honum og séð margar styttur eftir hann á götum borgarinnar. Hér má einnig sjá mörg minniskmerki frá tímum Pablo Escobar og hægt er að fara í göngutúr með leiðsögn og heyra um þá tíma. Áttu inni smá orku um morguninn? Þá er tilvalið að fara í svifflug yfir dalinn og upplifa borgina frá allt öðru sjónarhorni.
Cali
Á meðan konurnar í Medellín eru allar að eltast við staðalímynd fegurðarinnar þá eru konurnar í Cali á fleygiferð því þetta er svo sannarlega Salsa borgin! Þar er alveg tilvalið að læra að dansa salsa til að geta tekið nokkur spor. Allir eru velkomnir á dansgólfið og heimamenn elska að bjóða upp á ókeypis kennslu!
Sæta Suðrið
Komið nóg af stórborginni? Taktu rútu frá Bogotá og hoppaðu út í San Augustin. Fáðu þér morgunmat með heimabökuðu brauði og farðu á hestbaki gegnum dalinn sem skreyttur er gullfögrum fornum styttum. Láttu útskýra fyrir þér fæðingardaginn þinn samkvæmt fornri Maya speki og hoppaðu svo um borð í bát og upplifðu river rafting á stigi 3 og 4. Allt er hægt, og náttúran ræður ríkjum.
Costa Caribe
Hoppaðu upp í rútu með heimamönnum og keyrðu gegnum einskismannslandið til norðurs. Svo vaknar þú í Cartagena, stærstu nýlenduborg Rómönsku-Ameríku. Sofðu í nýlenduhlutanum og keyrðu í hestvagni gegnum sögulega borgina meðal gullfallegra, litríkra húsa.
Farðu til Santa Marta, en þaðan getur þú tekið lítinn sendibíl og endað í paradís bakpokaferðamanna; Taganga. Ströndin er þín, hér geturðu sofið í hengirúmi og uppgötvaðu alvöru náttúru.