Að kafa opnar fyrir þér nýjan heim! Þú trúir ekki hversu mikið líf og mikil litadýrð leynist undir yfirborði sjávar fyrr en þú hefur séð það með eigin augum. Langar þig að læra að kafa í Asíu? Viltu kannski bæta við þig frekari köfunarréttindum? Eða bara fara í fundive? Við bjóðum upp á köfun á mörgum fallegum stöðum í Asíu.
Fá fría ráðgjöf
Hér getur þú skoðað hvar hægt er að kafa, snorkla og læra að kafa í Asíu. Í öllum okkar köfunarferðum er öryggi fyrsta forgangsatriðið; öllum búnaði er vel við haldið og þú ert alltaf í fylgd leiðsögumanns. Finndu spennandi köfun í Asíu hér eða hafðu samband við ferðasérfræðinga okkar ef þú ert ekki viss um hvaða köfunarferð hentar þér best.